Af hverju GoodToKnow.is?

GoodToKnow.is er upplýsinga- og fræðsluvefur fyrir framlínustarfsfólk í ferðaþjónustu sem auðveldar framlínustarfsfólki að veita ferðamönnum góðar og réttar upplýsingar. Hann nýtist sérstaklega þeim, sem hafa ekki áður starfað í ferðaþjónustu. Unnið í samstarfi við Ferðamálastofu og styrkt af Landsmennt, Starfsafli og Starfsmenntasjóði verslunar- og skrifstofufólks.

Helstu upplýsingar á GoodToKnow.is

 
  • Grunnþekking á Íslandi – menning, tungumál, landafræði og helstu áfangastaðir.
  • Ferðaþjónusta í tölum – fjöldi ferðamanna, árstíðasveiflur og ferðamynstur.
  • Öryggisráð – umferð, náttúruöryggi og veðurupplýsingar.
  • Hagnýtar leiðbeiningar fyrir þjónustu – hvernig veita á réttar upplýsingar og skapa góða upplifun.
  • Stuðningur fyrir nýliða – einföld og skýr fræðsla fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í ferðaþjónustu.

Skoðaðu vefinn

Good to know

Með því að kynna sér upplýsingarnar á goodtoknow.is getur starfsfólk aflað sér grunnþekkingar um Ísland og íslenska ferðaþjónustu sem gagnast þeim í starfi.

App screenshot