
Forysta og ábyrgð
Öryggismál ferðaþjónustufyrirtækja snúa jafnt að gestum sem starfsfólki, svo að mörgu þarf að huga. Þegar stjórnendur setja öryggi í forgrunn, sýna skýrt fordæmi og viðhalda opnu samtali og reglulegri endurskoðun ferla, byggist upp meira traust og sterkari þátttaka starfsfólks. Með stöðugri eftirfylgni og skýrri ábyrgð í forystu festist öryggi í sessi sem hluti af daglegu starfi, sem styrkir heildstæða öryggismenningu fyrirtækisins.
Gátlisti fyrir stjórnendur til að styrkja öryggismenningu
- Sýna fordæmi með því að fylgja öllum öryggisferlum sjálfir
- Halda reglulegar samræður um öryggi með þátttöku starfsfólks
- Tryggja að endurskoðun á ferlum og áhættumati sé hluti af rútínu
- Fylgja eftir ábendingum og bregðast sýnilega við þeim
- Hvetja til gagnsæis og gera starfsfólki auðvelt að koma með athugasemdir
- Meta hvort þjálfun og fræðsla sé uppfærð og aðgengileg öllum