Nám og námskeið

Námskeið fyrir ferðaþjónustu

Fræðsluaðilar um land allt eru tilbúnir að hjálpa þínu fyrirtæki að ná árangri. Hér getur þú fundið ýmis hagnýt námskeið innan þíns sviðs.

Síur

Íslenskunámskeið

Símenntun á Vesturlandi

Símenntun á Vesturlandi býður upp á sérsniðin námskeið eftir óskum og eftirspurn. Námskeiðin eru af ýmsum toga og eru kennd víða á Vesturlandi. Sum námskeið eru sett á dagskrá reglulega en önnur eru haldin í samræmi við eftirspurn.

Íslensk tunga

Símenntun á Vesturlandi

Vinnuumhverfi og líkamsbeiting

Fræðsluerindi og námskeið

Sérfræðingar á vinnuumhverfissviði sinna fjölbreyttri fræðslu er snýr að líkamsbeitingu starfsfólks og aðlögun vinnuumhverfis. Við bjóðum bæði upp á staðlaða fræðslu og fræðslu sem unnin er sérstaklega fyrir vinnustaði með þeirra þarfir í huga. Vinnuumhverfissvið býður fræðslu um líkamsbeitingu við skrifstofustörf, líkamleg störf, raddbeitingu o.fl.

Öryggi

Vinnuvernd

Íslenska fyrir útlendinga

Fræðslumiðstöð Vestfjarða

Unnið er með þætti sem tengjast daglegu lífi og störfum með það að markmiði að auka orðaforða. Lögð er áhersla á að nemendur geti gert sig skiljanlega og tekið þátt í einföldum samræðum um dagleg málefni. Allir þættir tungumálsins eru þjálfaðir. Námskeiðið er aðlagað nemendahópnum og því geta áherslur verið mismunandi milli hópa.

Íslensk tunga

Fræðslumiðstöð Vestfjarða

Íslenska fyrir útlendinga

Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum

MSS býður upp á námskeið í íslensku 1-5 á námskeiðunum er lögð áhersla á skiling og talað mál, auk ritunar, hustunar, lesturs og er málfræði fléttuð inn í námsefni. Auk þess bjóðum við upp á starfstengd íslenskunámskeið fyrir fyrirtæki. MSS offers courses in Icelandic 1-5, courses focus on comprehension and spoken language, as well as writing, hearing, reading, and grammar is integrated into the curriculum. In addition, we offer vocational Icelandic courses for companies.

Íslensk tunga

Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum

Vinnuslys

Hvað er vinnuslys

Farið verður yfir nokkrar skilgreiningar á vinnuslysum. Hvað er vinnuslys, óhapp og næstum slys? Er skylda að skrá og tilkynna öll vinnuslys til Vinnueftirlitsins? Hverjar eru algengustu orsakir vinnuslysa? Hvaða forvörnum er vænlegast að beita til að koma í veg fyrir vinnulsys. Settar verða fram skilgreingar á þremur stigum forvarna vegna vinnuslysa. Hugmyndafræði Safety I og II er kynnt. Þátttakendur greina myndir og myndbönd af raunverulegum vinnuslysum. Að lokum er fjallað stuttlega um tölfræði vinnuslysa

Öryggi

Vinnuvernd

Áhættumat

Í boði á íslensku og ensku

Hvaða vinnustaðir eiga að gera áhættumat og hver á vinnustaðnum á að sjá um framkvæmdina? Á námskeiðinu er farið yfir hvað vinnuverndarlögin og reglugerðir segja um áhættumat. Uppbygging áhættumatsins og hugmyndafræði þess er útskýrð. Kennd er einföld og markviss aðferð til að gera áhættumat en hún heitir „sex skref við gerð áhættumats“. Aðferðin byggist á notkun gátlista og eyðublaða frá Vinnueftirlitinu. Á námskeiðinu eru gerðar raunhæfar æfingar í að greina hættur í vinnuumhverfinu. Farið er yfir eyðublöð og verkfæri sem gott er að nota við áhættumat. Að námskeiðinu loknu eiga þátttakendur auðvelt með að gera áhættumat á sínum vinnustað. Þátttakendur geta sent kennurum námskeiðsins spurningar um eigið áhættumat að námskeiðinu loknu.

Öryggi

Vinnuvernd

Icelandic in a nut shell / Íslenska í stuttu máli

Icelandic in a nut shell

Icelandic in a nutshell At Mímir Lifelong Learning Centre, a practical micro-course in Icelandic is now available that could be a good fit for people working in tourist service. Icelandic in a nutshell is a practical micro-course (6 hours), especially designed for people who work in tourism or catering and want to start learning Icelandic. During the course, people learn common words and simple sentences such as greetings and the numbers. Common phrases and fun Icelandic words are also taught that can be used in communication, both with domestic and foreign tourists and in everyday life. Participants also gain insight into common customs in Icelandic society and information on ways to continue learning Icelandic. The course is an on-line course. It is taught twice, three hours at a time, a total of 6 hours. Dates are 21st and 23rd September 2026. The course uses a variety of materials and active student participation to ensure effective and enjoyable learning in Icelandic. Most unions subsidize Icelandic courses for their members.

Íslensk tunga

Mímir

Staðlar og sjálfbærni

Verðmætasköpun til framtíðar

Námskeið í samstarfi við Staðlaráð Íslands Námskeiðið varpar ljósi á hvernig alþjóðlegir staðlar geta stutt við sjálfbæra þróun í atvinnulífi og samfélagi. Þátttakendur fá innsýn í hvernig stöðlun eykur gæði, öryggi og gagnsæi og hvernig staðlar skapa sameiginlegan ramma fyrir vistvæna hönnun, ábyrga stjórnarhætti og loftslagsaðgerðir. Með raunverulegum dæmum úr íslensku atvinnulífi og hagnýtum verkefnum öðlast þátttakendur verkfæri til að nýta staðla í eigin starfsemi.

SjálfbærniGæði og sjálfbærni

Endurmenntun Háskóla Íslands

Þjónustunámskeið-Fagmennska, betri samskipti og ánægðari viðskiptavinir

Þjónustunámskeið

Viltu betri þjónustumenningu og sterkari samskipti á vinnustaðnum? Þetta hagnýta þjónustunámskeið eflir fagmennsku, ánægju og samheldni bæði innan teymisins og út á við.

Þjónusta

Gerum betur

Sjálfbærni

Sjálfbærni- Inngangur í helstu hugtök sjálfbærninnar

Markmið námskeiðsins er m.a. að nemandi þekki helstu hugtök sjálfbærninnar, um hvað málið snýst og af hverju sjálfbærni skiptir máli fyrir fyrirtæki og stofnanir.

Sjálfbærni

Akademias

Hæ! Hvernig get ég aðstoðað þig? 👋

Hvað er það sem þú vilt vita?