
Einfaldir og aðgengilegir verkferlar
Allir vinnuveitendur bera ábyrgð á að útbúa skriflega áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað, óháð stærð hans. Vinnueftirlitið hefur umsjón með því og veitir nánari leiðbeiningar. Allir sem ætla að bjóða upp á skipulagðar ferðir innanlands verða að hafa öryggisáætlanir fyrir ferðir sínar. Ferðamálastofa veitir leiðbeiningar um gerð öryggisáætlana í ferðum. Gakktu úr skugga um að allt starfsfólk þekki öryggisferla og viðbragðsáætlanir og hafðu upplýsingarnar aðgengilegar og öllum skiljanlegar. Mælt er með að setja mikilvægar leiðbeiningar upp í myndrænu formi (t.d. verkferla og viðbragðsáætlanir) og þær hengdar upp á svæði þar sem starfsfólk sér þær í sínu daglega starfi.
Gátlisti fyrir stjórnendur um gerð einfaldra og aðgengilegra verkferla
- Tryggðu að til sé skrifleg öryggis- og heilbrigðisáætlun fyrir vinnustaðinn, í samræmi við kröfur Vinnueftirlitsins
- Settu upp öryggisáætlanir fyrir allar skipulagðar ferðir, samkvæmt leiðbeiningum Ferðamálastofu
- Ákveddu skýrt hver ber ábyrgð á gerð, uppfærslu og eftirfylgni verkferla og viðbragðsáætlana
- Hafðu öryggisferla einfalda, stutta og skýra, þannig að allt starfsfólk geti tileinkað sér þá
- Tryggðu að allir starfsmenn þekki ferlana og fái viðeigandi fræðslu þegar þeir byrja eða þegar ferlar uppfærast
- Gakktu úr skugga um að ferlar og áætlanir séu aðgengilegar á einum stað – bæði rafrænt og á vinnusvæði
- Notaðu myndrænar leiðbeiningar, skýringarmyndir eða flæðirit fyrir helstu verkferla og hengdu þá upp þar sem starfsfólk fer reglulega um
- Endurskoðaðu ferla reglulega, sérstaklega eftir frávik eða breytingar í starfsemi
- Athugaðu hvort ferlarnir séu í raun notaðir í daglegu starfi – fáðu ábendingar frá starfsfólki og leiðréttu ef eitthvað er óljóst eða flókið
- Hafðu opna samskiptaleið fyrir áhyggjur og ábendingar starfsfólks um ferla sem þarf að laga eða einfalda.