Ferðapúlsinn

Ferðapúlsinn er verkfæri fyrir ferðaþjónustuaðila þar sem þeir geta með einföldum hætti fengið mat á stöðu fyrirtækisins hvað varðar stafræna hæfni. Hæfnisetur ferðaþjónustunnar þróaði Ferðapúlsinn í samvinnu við Ferðamálastofu, Íslenska ferðaklasann, Markaðsstofur landshlutanna og SAF.

Hvers vegna er mikilvægt að fyrirtæki greini stafræna stöðu sína?

Að þekkja stafræna stöðu og hæfni gerir ferðafyrirtækjum kleift að forgangsraða rétt, nota fjármuni markvisst og velja réttu lausnirnar. Skýr mynd af stöðunni hjálpar að þróa hæfni starfsfólks, bregðast hratt við breytingum í hegðun gesta og nýta markaðstækifæri - sem skilar betri upplifun og meiri tekjum.

Hvað er stafræn hæfni?

Stafræn hæfni í ferðaþjónustufyrirtækjum vísar til hæfni til að nýta stafrænar lausnir og tækni við að bæta þjónustu, auka skilvirkni og bæta upplifun viðskiptavina. Þetta felur í sér m.a. gervigreind, stafræna markaðssetningu, upplýsingatækni, gagnagreiningu, netöryggi og stafræna þjónustu.


 

Taktu stöðuna núna því ávinningurinn er stór!


8–10 mínútur í Ferðapúlsinn og þú færð skýra mynd strax. Þar á eftir bíður fræðslutorg með forgangsröðuðum aðgerðum, lausnum sem smellpassa og efni sem sparar tíma í stafrænu vegferðinni. Það styður teymið í að framkvæma, fylgjast með árangri og bæta stöðugt.