
Flokkun sem fjárfesting
Rétt flokkun er skilvirkt, arðbært og sýnilegt verklag fyrir ferðþjónustuna. Með skýrum merkingum og skref‑fyrir‑skref leiðbeiningum lækkið þið sorpkostnað, minnkið kolefnisspor og sýnið gestum að sjálfbærni er hluti af daglegum rekstri. Hér finnið þið allt sem þarf: hvað fer hvar, hvernig aðstaða er best uppsett í herbergjum, eldhúsum og móttöku, og hvernig þið virkjið starfsfólk og gesti.
Fjárhagslegur ávinningur
Styrkt ásýnd og samkeppnishæfni
Samfélagsleg ábyrgð og framtíðarsýn
Fjárhagslegur ávinningur
Styrkt ásýnd og samkeppnishæfni
Samfélagsleg ábyrgð og framtíðarsýn
1.Fjárhagslegur ávinningur
Rétt flokkun getur lækkað sorphreinsunarkostnað um allt að 50 %. Hún dregur úr losunargjöldum og í sumum tilfellum getur endurvinnsluefni skilað afslætti eða tekjum – til dæmis með sölu málma eða afhendingu hreins pappa og plasts. Því meira sem fer í óendurvinnanlegt sorp, því hærri kostnaður – kostnaður sem hægt er að lækka með réttri flokkun.

Gott að hafa í huga við flokkun


