Fagorðalistar ferðaþjónustunnar

Í samstarfi við hagaðila hefur Hæfnisetur ferðaþjónustunnar þróað sérhæfða fagorðalista sem nýtast starfsfólki í ferðaþjónustu í daglegu starfi. Í orðalistunum er að finna algeng orð og orðatiltæki sem notuð eru í greininni og geta þeir stuðlað að betri samskiptum á vinnustað sem og við ferðafólk sem hefur áhuga á að kynnast íslenskunni með því að læra stök orð. Orðalistarnir eru á þremur tungumálum og hægt er að hlusta á framburð orðanna á íslensku.

Fagorðalisti ferðaþjónustunnar
Fagorðalistar ferðaþjónustunnar eru fyrir móttöku, þrif og umgengni, eldhús, skoðunarferðir og akstur, afþreyingu og þjónustu í sal. Orðalistarnir eru á þremur tungumálum. Hlusta má á framburð orðanna á íslensku.
Veggspjöld
Til að efla góða samvinnu og sameiginlegan skilning starfsfólks í ferðaþjónustu var tekinn saman listi yfir algeng orð sem notuð eru á fimm mismunandi sviðum og eru á þremur tungumálum, íslensku, ensku og pólsku.
Fiskabúrið
Fiskabúrið geymir safn heita yfir matfiska sem notaðir eru í réttum veitingastaða með myndum eftir Jón Baldur Hlíðberg. Fiskabúrið er á fjórum tungumálum. Hlusta má á framburð orðanna á íslensku.
1

Hvað og af hverju?

2

Fyrir hverja?

3

Hvernig virkar þetta?

4

Skref fyrir skref

1.Hvað og af hverju?

Um er að ræða orðasafn algengra orða og frasa sem notaðir eru í ferðaþjónustunni og geta auðveldað samskipti á vinnustað. Markmiðið er að efla góða samvinnu og sameiginlegan skilning starfsfólks og tryggja afbragðs þjónustu fyrir gesti.

Fagorðalisti ferðaþjónustunnarMyndband um notkun fagorðalistans

Opna á YouTube