
Fræðslugreiningar
Starfsemi í ferðaþjónustu einkennist af miklum hraða, árstíðasveiflum og síbreytilegum væntingum gesta, m.a. í stafrænum bókunum og kröfum um sjálfbærni. Kerfisbundin fræðslugreining gerir fyrirtækjum kleift að kortleggja skort á hæfni, meta áhættu og forgangsraða fræðslu sem skilar mælanlegum rekstrarárangri. Hæfnisetur ferðaþjónustunnar hefur sett saman hagnýtar lausnir og verkfærasafn til að framkvæma greininguna án utanaðkomandi aðstoðar.
Markmið fræðslunnar og árangursmælikvarðar
Greining fræðsluþarfa starfsfólks
Að setja upp fræðsluáætlun
Fræðsla fer fram og árangur er metinn
Markmið fræðslunnar og árangursmælikvarðar
Greining fræðsluþarfa starfsfólks
Að setja upp fræðsluáætlun
Fræðsla fer fram og árangur er metinn
1.Markmið fræðslunnar og árangursmælikvarðar
Áður en fræðslugreining er framkvæmd er mikilvægt að huga að því hvaða árangri fræðslan á að skila. Er markmiðið t.d. að auka ánægju starfsfólks, fjölga meðmælum gesta eða stuðla að auknum þjónustugæðum?
Til að auðvelda stjórnendum að setja sér markmið og mæla árangurinn af fræðslu hefur Hæfnisetur ferðaþjónustunnar útbúið handhægt excel skjal með fjölbreyttum árangursmælikvörðum. Í hverjum flipa má finna stutta lýsingu á viðkomandi mælikvarða ásamt upplýsingum um hvernig má mæla og túlka niðurstöður. Leiðbeiningar fylgja.
Mælt er með að velja a.m.k. tvo árangursmælikvarða. Framkvæma skal fyrstu mælingar áður en fræðslugreining hefst.