Nýtt og endurbætt vefsvæði Hæfnisetursins opnað

Vefsvæðið hæfni.is hefur verið endurhannað frá grunni til að mæta betur þörfum greinarinnar. 

Á síðustu árum hefur orðið mikil aukning í stuðningsefni og verkfærum sem Hæfnisetrið miðlar. Eldra vefsvæði annaði ekki lengur þeirri þróun og því var á síðasta ári ráðist í umfangsmikla uppfærslu og endurbætur með áherslu á betri notendaupplifun, aukið aðgengi og skýrari framsetningu.

Nýi vefurinn byggir á öflugum tæknilegum grunni sem styður við hraða, öryggi og snjalla miðlun efnis. Sérstök áhersla er lögð á öfluga leit og einfalda leiðsögn svo notendur geti á auðveldan hátt fundið efni sem nýtist þeim í starfi.

 

Spjallmennið Gestur leiðir notendur áfram

Ein af helstu nýjungum vefsins er spjallmennið Gestur, sem aðstoðar notendur við að finna viðeigandi efni á fljótlegan og markvissan hátt. Gestur notar gervigreind til að leiðbeina og svara spurningum og gerir þannig aðgengi að efni Hæfnisetursins enn einfaldara.

Einnig heldur stafrænt vinnusvæði Hæfnisetursins áfram að stækka og þróast og er nú aðgengilegt bæði á íslensku og ensku með fjölda sniðmáta sem styðja við allt frá nýliðamóttöku yfir í starfsmannahandbækur og stefnumótun. 

Markmiðið er að vefurinn verði virkt verkfæri sem lagar sig að þörfum greinarinnar í rauntíma. Í kjölfar tæknilegu uppfærslunnar er unnið að heildstæðri rýni á öllu efni til að tryggja að sú þekking og lausnir sem miðlað er, séu ávallt uppfærð og viðeigandi fyrir fjölbreyttan markhóp Hæfniseturs ferðaþjónustunnar. 

 

Hæ! Hvernig get ég aðstoðað þig? 👋

Hvað er það sem þú vilt vita?