Fræðsluaðilar um land allt eru tilbúnir að hjálpa þínu fyrirtæki að ná árangri. Hér getur þú fundið ýmis hagnýt námskeið innan þíns sviðs.
Fræðsluerindi og námskeið
Sérfræðingar á vinnuumhverfissviði sinna fjölbreyttri fræðslu er snýr að líkamsbeitingu starfsfólks og aðlögun vinnuumhverfis. Við bjóðum bæði upp á staðlaða fræðslu og fræðslu sem unnin er sérstaklega fyrir vinnustaði með þeirra þarfir í huga. Vinnuumhverfissvið býður fræðslu um líkamsbeitingu við skrifstofustörf, líkamleg störf, raddbeitingu o.fl.
Vinnuvernd

Hvað er vinnuslys
Farið verður yfir nokkrar skilgreiningar á vinnuslysum. Hvað er vinnuslys, óhapp og næstum slys? Er skylda að skrá og tilkynna öll vinnuslys til Vinnueftirlitsins? Hverjar eru algengustu orsakir vinnuslysa? Hvaða forvörnum er vænlegast að beita til að koma í veg fyrir vinnulsys. Settar verða fram skilgreingar á þremur stigum forvarna vegna vinnuslysa. Hugmyndafræði Safety I og II er kynnt. Þátttakendur greina myndir og myndbönd af raunverulegum vinnuslysum. Að lokum er fjallað stuttlega um tölfræði vinnuslysa
Vinnuvernd

Í boði á íslensku og ensku
Hvaða vinnustaðir eiga að gera áhættumat og hver á vinnustaðnum á að sjá um framkvæmdina? Á námskeiðinu er farið yfir hvað vinnuverndarlögin og reglugerðir segja um áhættumat. Uppbygging áhættumatsins og hugmyndafræði þess er útskýrð. Kennd er einföld og markviss aðferð til að gera áhættumat en hún heitir „sex skref við gerð áhættumats“. Aðferðin byggist á notkun gátlista og eyðublaða frá Vinnueftirlitinu. Á námskeiðinu eru gerðar raunhæfar æfingar í að greina hættur í vinnuumhverfinu. Farið er yfir eyðublöð og verkfæri sem gott er að nota við áhættumat. Að námskeiðinu loknu eiga þátttakendur auðvelt með að gera áhættumat á sínum vinnustað. Þátttakendur geta sent kennurum námskeiðsins spurningar um eigið áhættumat að námskeiðinu loknu.
Vinnuvernd

Búum til talsmenn öryggismála
Námskeiðið þjálfar talsmenn öryggismála í að fá aðra í lið með sér og búa þannig til sterka öryggismenningu. Núll slys eru raunhæfur kostur.
Dale Carnegie
Hvað er sálfélagslegt vinnuumhverfi? Hvernig er hægt að gera áhættumat vegna sálfélagslegs vinnuumhverfis? Hvað er einelti og áreitni? Hverjir verða fyrir einelti og áreitni? Hvað geta vinnustaðir gert til að fyrirbyggja einelti og áreitni. Fjallað er um mikilvægi þess að taka markvisst á slíkum málum komi þau upp. Einnig verður sýnd og fjallað um vandaða “stefnu og viðbragðsáætlun” vegna eineltis og áreitni.
Vinnuverndarnámskeið ehf.

Í boði á íslensku og ensku
Farið er yfir hlutverk öryggistrúnaðarmanna, öryggisvarða og öryggisnefnda á vinnustöðum. Vinnuverndarlögin og reglugerðir um vinnuverndarmál eru kynnt. Farið er yfir helstu málaflokka vinnuverndarinnar, s.s. líkamsbeitingu, efni og inniloft, vélar og tæki, umhverfisþætti eins og t.d. hávaða og lýsingu og sálfélagslegt vinnuumhverfi, einelti og áreitni. Námskeiðið fer bæði fram í fjarnámi og útsendingu gegnum Google Meet.
Vinnuverndarnámskeið ehf.
Hæ! Hvernig get ég aðstoðað þig? 👋