Fræðsluaðilar um land allt eru tilbúnir að hjálpa þínu fyrirtæki að ná árangri. Hér getur þú fundið ýmis hagnýt námskeið innan þíns sviðs.

Einelti, kynferðisleg áreitni,kynbundin áreitni og ofbeldi (EKKO)
Fyrirlestur fyrir starfsmenn: Í þessum fyrirlestri verður farið yfir skilgreiningar úr reglugerð nr. 1009/2015 á EKKO, ásamt því að fara yfir helstu birtingarmyndir og hvaða afleiðingar EKKO getur haft fyrir einstaklinga og vinnustaði. Áhersla er lögð á ábyrgð og skyldur starfsmanna og stjórnenda. Í lokin er farið yfir hvað felst í jákvæðum samskiptum og hlutverk þeirra í að skapa jákvæðan starfsanda.
Vinnuvernd

"Hvernig á að elska mánudaga"
Sálfræðingar Vinnuverndar kynna þriggja vikna námskeið sem ætlað er starfsmönnum vinnustaða. Námskeiðið miðar að því að veita starfsfólki ýmis verkfæri til að takast á við daglegar áskoranir, í vinnu og einkalífi, að auka starfsánægju og bæta líðan. Námskeiðið samanstendur af 3 kennsludögum, einu sinni í viku í tvo tíma í senn. Fyrirkomulagið er sniðið að þörfum hvers vinnustaðar þar sem valin eru þrjú viðfangsefni sem tekin verða fyrir á námskeiðinu (eitt viðfangsefni tekið fyrir á hverjum kennsludegi).
Vinnuvernd

Verum viðstödd í eigin lífi
Hraði í samfélaginu er mikill, kröfur nútímans eru miklar og við erum að hugsa um og gera fjölmarga hluti í einu. Við fljótum stundum í gegnum daginn ómeðvituð um okkur sjálf og umhverfi okkar því við erum með hugann við verkefnalistann og allt sem þarf að muna, skipuleggja, gera og græja og allt það sem áður hefur gerst sem hefði mátt betur fara. Hve mikinn þátt erum við að taka í eigin lífi?
Vinnuvernd

Starfslokanámskeið
Námskeiðið er hannað til að aðstoða fólk við að undirbúa sig og njóta þeirra breytinga sem verða eftir að það lýkur störfum. Á þessu námskeiði verður fjallað um allar helstu breytingar sem hafa þarf í huga við starfslok á gagnlegan og skýran hátt
Vinnuvernd

Vinnuverndarnámskeið ehf.
Farið er yfir hlutverk öryggistrúnaðarmanna, öryggisvarða og öryggisnefnda á vinnustöðum. Vinnuverndarlögin og reglugerðir um vinnuverndarmál eru kynnt. Farið er yfir helstu málaflokka vinnuverndarinnar, s.s. líkamsbeitingu, efni og inniloft, vélar og tæki, umhverfisþætti eins og t.d. hávaða og lýsingu og sálfélagslegt vinnuumhverfi, einelti og áreitni. Námskeiðið fer bæði fram í fjarnámi og útsendingu gegnum Google Meet.
Vinnuverndarnámskeið ehf.

Markmið námskeiðsins er að gera stjórnendur meðvitaðri um eigin tímastjórnun og vinnuskipulag ásamt því að vekja þá til umhugsunar um hvernig þeir stýra sínu starfsfólki, með það að markmiði að gera þá að öflugri stjórnendum.
RM ráðgjöf

Áhrif hugsana og hegðunar á líðan (HAM)
Sálfræðingar Vinnuverndar bjóða upp á fræðslunámskeið fyrir starfsfólk vinnustaða þar sem áhersla er lögð á andlega heilsu, fræðslu um hugræna atferlismeðferð og verkefnavinnu til að auka skilning á eigin hugsunum, líðan og hegðun. Hægt er að velja um tvennskonar kennslufyrirkomulag eða nálgun á námskeiðið eftir því hversu djúpt vinnustaðurinn vill fara í efnið. Þær eru eftirfarandi: Leið A – 3 kennsludagar, sem eru 2 klst. í senn með stuttu kaffihléi, þar sem farið er yfir ákveðið viðfangsefni og unnið með með starfsfólki í vinnustofu. Leið B – 1 kennsludagur, sem er 1,5 klst. farið er yfir helstu viðfangsefni og unnið með starfsfólki í vinnustofu í framhaldinu
Vinnuvernd

Starfar þú í ferðaþjónustu? Vilt þú taka þátt í því að koma íslenskri ferðaþjónustu í fremstu röð á næstu 3-5 árum? Þá er Segull – Leiðtogaþjálfun ferðaþjónustunnar fyrir þig. Segull felur í sér 20 - 30 klst nám (Leiðtogi í ferðaþjónustu) sem annars vegar stafrænt nám og hins vegar vinnustofur.
Akademias

Góð þjónusta er það sem gerir fyrirtækjum samkeppnisforskot. Á þessu námskeiði er byrjað á því að efla fólk í framkomu og samskiptum. Þá er þjónusta skoðuð frá skemmtilegu sjónarhorni, rætt um helstu áskoranir og skoðað hvernig viðhorf hefur áhrif á líðan og afköst. Þá gera þáttakendur æfingar þar sem þeir setja sig í spor viðskiptavinarins. Þetta námskeið eflir þjónustuvitund og færni starfsfólks og eykur starfsánægju.
María Ellingsen