Sjálfbærni og mannauður

Sjálfbærni eykur orðspor og trúverðugleika fyrirtækis og gerir það að eftirsóknarverðum vinnustað í augum umsækjenda. Fyrirtæki sem vinna markvisst að sjálfbærni í öllum sínum rekstri eru líklegri til að laða að og halda í hæft starfsfólk. Skýrir verkferlar, ábyrg vinnubrögð, áhersla á öryggi og umhyggja fyrir nærsamfélaginu skapa vinnustað sem starfsfólk getur verið stolt af og um leið jákvæða vinnustaðarmenningu. Sjálfbær nálgun kallar jafnframt á stöðuga hæfniþróun starfsfólks með áherslu á sameiginlega ábyrgð, nýsköpun, þróun vistvænni lausna og ábyrgri auðlindanotkun.

 

Skref í átt að sjálfbærari rekstri 

1

Kortleggja stöðuna

2

Móta sjálfbærnistefnu og markmið

3

Innleiða í nýliðaþjálfun og dagleg störf

4

Mæla, miðla og betrumbæta

1.Kortleggja stöðuna

Fyrst er að komast að því hver núverandi staða fyrirtækisins er í sjálfbærnimálum. Kortleggðu umhverfisáhrif þjónustunnar s.s.: orkunotkun, úrgang, efnanotkun og kolefnisspor. Skilgreindu einnig helstu áhættur og tækifæri fyrir gesti, starfsfólk og nærsamfélag. Mældu sjálfbærni í mannauðsmálum t.d. tarfsmannaveltu, fjarvistir, þjálfunarstundir og fjölbreytileika starfsfólks. Þá er hægt að setja markmið um framfarir með skýrri tímalínu og mynda lítil teymi sem fá skýra ábyrgð til úrbóta.