header image

Skipulögð þrif tryggja stöðug gæði, draga úr kvörtunum og skapa góða ásýnd

Þrif


 

Gátlistar

Margir gististaðir nota sína eigin gátlista fyrir herbergjaþrif. Hér er dæmi um gátlista sem hægt er að hafa til hliðsjónar.

Gátlisti á íslensku og ensku

Herbergjaþrif

Vel þrifin og snyrtileg herbergi skipta máli fyrir upplifun og öryggi gesta. Mundu að gesturinn kemur að herberginu eins og þú hefur skilið við það.

10 skref við þrif á herbergjum

Þrif á sameiginlegum rýmum

  • Þrífðu gestalyftu og pússaðu spegil með hreinum klút (spegil þarf að þrífa reglulega yfir daginn).
  • Þvoðu og sótthreinsaðu sameiginlega snertifleti yfir daginn; t.d. lyftuhnappa, stigahandrið, hurðarhúna, greiðsluposa.
  • Þurrkaðu af innstungum og rofum.
  • Ryksugaðu alla ganga og skúraðu/moppaðu (fer eftir gólfefnum).
  • Þrífðu alla bletti sem kunna að vera á veggjum, handriðum og víðar. Skiptu um ljósaperur, ef þarf.
  • Þurrkaðu af öllum borðum og hillum.
  • Hafðu móttökuborð snyrtilegt.
  • Fjarlægðu allt rusl við inngang: sígarettustubba, illgresi o.fl.
  • Dragðu gardínur frá gluggum.
  • Raðaðu húsgögnum snyrtilega upp.
  • Þurrkaðu af gluggakistum og rúðum.
  • Þar sem plöntur eru þarf að passa að þær séu snyrtilegar og að dauð lauf séu fjarlægð.

Þrif á snyrtingum

  • Settu hrein handklæði eða fylltu á einnota pappírsþurrkur, eftir því sem við á.
  • Tæmdu allt rusl.
  • Þvoðu og sótthreinsaðu vask, blöndunartæki og salernisskál vel með viðeigandi hreinsiefnum og með sitthvorri tuskunni.
  • Mikilvægt er að þrífa vel og sótthreinsa salernisskálina bæði að utan og innan.
  • Fjarlægðu hár úr niðurföllum.
  • Pússaðu spegilinn með hreinum klút og passaðu að skilja ekki eftir tuskuför eða ský.
  • Passaðu að það sé nóg til af klósettpappír og fylltu á sápu.
  • Þvoðu gólfið og farðu vel út í öll horn, meðfram og á bak við salernisskál.
  • Þurrkaðu af og sótthreinsaðu innstungur og rofa.

Algeng orð - þrif


Fagorðalisti ferðaþjónustunnar er orðasafn algengra orða og frasa sem notaðir eru í ferðaþjónustunni og geta auðveldað samskipti á vinnustað. Orðalistarnir eru á þremur tungumálum en hlusta má á framburð orðanna á íslensku.

Smelltu á hnappinn fyrir neðan til að opna fagorðlista fyrir þrif.

Fagorðalisti - þrif

Snyrtimennska og hreinlæti

Almenn snyrtimennska og persónulegt hreinlæti eru lykilatriði.

  • Vertu í viðeigandi klæðnaði/einkennisfatnaði.
  • Þvoðu þér reglulega um hendurnar.
  • Passaðu upp á að neglur séu snyrtilegar.
  • Haltu hári í skefjum.
  • Farðu eftir reglum fyrirtækisins um notkun skartgripa, snyrtivara og ilmvatna.
  • Ekki neyta tóbaks og nota tyggigúmmíi þar sem viðskiptavinir sjá til.
  • Haltu starfsstöðinni þinni snyrtilegri og hreinni.
  • Til þess að borða og drekka skaltu fara afsíðis þar sem viðskiptavinir sjá ekki til og eins ef þú þarft að sinna persónulegum erindum í símanum þínum.