
Menningarnæmi
Menningarnæmi er færni sem þarf að þróa. Með því að velta fyrir okkur ákveðnum grundvallarspurningum getum við fyrirbyggt misskilning, dregið úr árekstrum og skapað vinnustað þar sem allir upplifa virðingu.
Þú getur aukið menningarnæmi með því að velta fyrir þér eftirfarandi spurningum:
- Hver eru mín gildi og viðhorf?
- Er ég fær um að virða og samþykkja viðhorf sem eru frábrugðin mínum eigin?
- Hvers konar fordóma eða staðalímyndir er ég með og af hverju? Hvað get ég gert til að breyta því?
- Hvernig get ég lært meira um menningu og siði samstarfsfólks míns og viðskiptavina?
- Hvernig get ég verið fyrirmynd í menningarnæmi fyrir samstarfsfólk mitt?
- Hvernig get ég brugðist við þegar ég rekst á menningartengda árekstra eða misskilning?
- Hvernig get ég stuðlað að virðingu og skilningi á milli ólíkra menningarhópa?