
Snyrtimennska og hreinlæti
Persónulegt hreinlæti og snyrtimennska eru undirstaða fagmennsku í okkar starfi. Útlit okkar og framkoma á vinnustaðnum sendir skýr skilaboð til viðskiptavina um gæði þjónustunnar og virðingu fyrir umhverfinu
Almenn snyrtimennska og persónulegt hreinlæti skiptir mjög miklu máli
- Vertu í viðeigandi klæðnaði/einkennisfatnaði
- Þvoðu þér reglulega um hendurnar
- Passaðu upp á að neglur séu snyrtilegar
- Haltu hári í skefjum
- Farðu eftir reglum fyrirtækisins um notkun skartgripa, snyrtivara og ilmvatna
- Ekki neyta tóbaks, nikótínpúða né nota tyggó þar sem viðskiptavinir sjá til
- Haltu starfsstöðinni þinni snyrtilegri og hreinni
- Til þess að borða og drekka skaltu fara afsíðis þar sem viðskiptavinir sjá ekki til og eins ef þú þarft að sinna persónulegum erindum í símanum þínum