header image

Velkomin á nýtt stafrænt vinnusvæði

Vinnusvæðið sem einfaldar daglegt starf í ferðaþjónustu

Hér færðu aðgang að öflugu vinnusvæði sem gerir skipulag og samvinnu auðveldari en nokkru sinni fyrr. Vinnusvæðið býður upp á fjölbreytt gagnvirk sniðmát sem þú getur sérsniðið að þínum þörfum – einföld í notkun og með notendavænu viðmóti á bæði íslensku og ensku. Allt sem þú eða stjórnendur breyta og vista er alltaf aðgengilegt síðar, svo þú getur aðlagað skjöl þegar þörf krefur. Þú getur líka boðið samstarfsfólki aðgang, hvort sem er til að vinna í skjölum saman eða þegar nýr starfsmaður tekur við verkefnum.
Deiling er jafn einföld: hlaðið niður skjölum sem PDF eða deilið slóð sem vefpart á heimasíðu eða innri vef fyrirtækisins. Með vinnusvæðinu sparar þú tíma, eykur yfirsýn og tryggir að allir séu á sama stað – bókstaflega.

Skráðu þig í dag og byrjaðu að nýta vinnusvæðið – einfaldara, hraðara og betra samstarf!


 

Mountaineers of Iceland

Mountaineers of Iceland

Haukur Herbertsson, rekstarstjóri

Þetta er frábært verkfæri til þess að koma á fót rafrænni starfsmannahandbók sem á að taka stöðugum endurbótum. Það er auðvelt að koma á fót handbók, birta hana á innri vef og aðlaga að breytingum með lítilli fyrirhöfn

Elding

Elding

Katrín Georgsdóttir, mannauðs- og gæðastjórí

Ég hef nýtt mér stafræna vinnusvæðið hjá Hæfnisetrinu til að fá betri yfirsýn og skiplag á handbókum fyrirtækisins. Þar hef ég líka fundið fullt af góðum hugmyndum og upplýsingum sem hjálpa mér að halda utan um stefnumót…

M

Meðmæli 3

hjdh

Dæmi um sniðmát sem eru í boði

Starfsmannahandbók
Starfsmannahandbók veitir skýrar upplýsingar um ábyrgð og væntingar sem auðvelda starfsfólki að finna sinn stað innan fyrirtækisins. Með gegnsæju verklagi, upplýsingagjöf og skýrum væntingum má auka starfsánægju og velferð
Gátlisti fyrir móttöku nýliða
Skýrt móttökuferli styttir aðlögunartíma starfsfólks, skapar jákvæð tengsl við vinnustaðinn frá byrjun og stuðlar að starfsáængju
Sjálfbærnistefna
Fryirtæki sem innleiða sjálfbærnistefnu geta byggt upp jákvæða ímynd og orðsport gagnvart gestum sem og starfsfólki og nærumhverfi.
Málstefna
Skýr málstefna auðveldar þjálfun nýrra starfsmanna og stuðlar að stöðugri þróun og menntun innan fyrirtækisins. Líta má á málstefnu sem leikreglur um málnotkun í alþjóðlegu málumhverfi.
Gloppugreining
Gloppugreining gefur fyrirtækjum yfirlit yfir núverandi stöðu, orsakir hennar og hugmyndir að breytingum. Á innri vef Hæfniseturs ferðaþjónustunnar má finna sniðmát til að framkvæma gloppugreiningu.
Væntanleg sniðmát
Hæfnisetrið í samstarfi við Ferðamálastofu vinnur að sniðmáti fyrir öryggisáætlanir.

Sýnishorn af útgefnu sniðmáti fyrir starfsmannahandbók

Kennsla í notkun og helstu aðgerðum stafræns vinnusvæðis