Gerðu þína eigin starfsmannahandbók
Starfsmannahandbók er lykillinn að því að allir fari sömu leið. Án hennar er hætta á að starfsfólk taki „skemmtilegar“ krókaleiðir sem kosta tíma, valda stressi og geta haft áhrif á upplifun viðskiptavina. Með góðri handbók færðu skýrleika, fagmennsku og ánægðara starfsfólk – sem skilar sér í betri þjónustu og sterkari fyrirtæki. Já, það tekur tíma að setja hana saman, en hún borgar sig margfalt.
Efni sniðmátsins er ekki tilviljun. Það er afrakstur samstarfs Hæfnisetursins, fyrirtækja og hagaðila innan ferðaþjónustunnar. Það byggir bæði á starfsmannahandbókum sem þegar eru í notkun og á dýrmætri endurgjöf frá faghópum Samtaka ferðaþjónustunnar.
Efnið er ekki tæmandi – en það er hannað til að hjálpa litlum og meðalstórum fyrirtækjum að hefjast handa. Hér færðu hugmyndir, tillögur og uppbyggingu sem sparar tíma og gerir þér kleift að skapa handbók sem styrkir fyrirtækið þitt og starfsfólkið.


Faglegar verklagsreglur
Handbókin inniheldur bestu starfsvenjur, reglur og lög og er unnin af sérfræðingum í samvinnu við atvinnugreinina

Aukin skilvirkni
Með því að nýta sér sniðmát sparar fyrirtækið tíma og getur einbeitt sér að kjarnastarfsemi sinni

Öryggi og vellíðan
Handbókin veitir mikilvægar upplýsingar um öryggisráðstafarnir og viðbrögð við neyðartilvikum, sem stuðlar að öryggi starfsfólks og gesta
Hér er dæmi um starfsmannahandbók sem byggir á efni sniðmátsins.
Inni á stafrænu vinnusvæði Hæfniseturins er hægt að vinna með sniðmátið, breyta efni, setja inn nýtt efni, setja inn myndir, töflur, myndbönd eða byrja frá grunni og skirfa sýna eigin starfsmannahandbók . Sjá nánar inn á stafrænu vinnusvæði Hæfnisetursins.