Einelti, áreitni og ofbeldi í vinnuumhverfinu geta leitt til mikils óöryggis og vanlíðunar starfsfólks. Slík hegðun má ekki viðgangast á vinnustöðum og því er mikilvægt að atvinnurekendur og stjórnendur stuðli að öflugum forvörnum og bregðist skjótt við í samræmi við reglugerð um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi. Hér að neðan er að finna upplýsingar sem aðstoða stjórnendur og starfsfólk við að stuðla að heilbrigðu vinnuumhverfi þar sem einelti, áreitni og ofbeldi fær ekki að viðgangast.
Kynntu þér málinReglugerð um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum.
Opna
Einelti
Einelti er síendurtekin hegðun sem almennt er til þess fallin að valda vanlíðan hjá þeim sem fyrir henni verður, svo sem að gera lítið úr, móðga, særa eða ógna viðkomandi eða að valda honum ótta. Skoðanaágreiningur eða ágreiningur vegna ólíkra hagsmuna fellur ekki hér undir. Einelti er einstaklingsbundin upplifun. Einelti er alvarlegt mál sem stjórnendur og starfsfólk eiga að láta sig varða og bregðast við eins fljótt og kostur er þegar slík mál koma upp.
MyndbandHér er fjallað um forvarnir og viðbrögð við einelti, áreitni og ofbeldi í vinnuumhverfinu.
Horfa
Kynferðisleg áreitni
Áreitni getur verið bæði kynferðisleg og/eða kynbundin. Kynferðislegri áreitni er hvers kyns kynferðisleg hegðun sem hefur þann tilgang eða þau áhrif að misbjóða virðingu þess sem fyrir henni verður, einkum þegar hegðunin leiðir til ógnandi, fjandsamlegra, niðurlægjandi, auðmýkjandi eða móðgandi aðstæðna. Fólk verður sjálft að meta hvaða framkomu það umber og frá hverjum. Það er alltaf huglægt mat hvort framkoman er kynferðisleg eða ekki. Kynferðisleg áreitni getur birst með ýmsum hætti og getur verið bæði orðbundin, táknræn og líkamleg. Kynferðisleg áreitni er alvarlegt mál sem stjórnendur og starfsfólk eiga að láta sig varða og bregðast við eins fljótt og kostur er þegar slík mál koma upp. Alvarleg tilvik áreitni geta fallið undir hegningarlög, jafnvel þótt einungis sé um eitt tilvik að ræða.
Dæmi um orðbundna hegðun:
Dæmi um táknræna hegðun:
Dæmi um líkamlega hegðun:
Dæmi um orðbundna hegðun:
Dæmi um táknræna hegðun:
Dæmi um líkamlega hegðun:
1.Dæmi um orðbundna hegðun:
Tvíræðar athugasemdir eða brandarar með kynferðislegum undirtón.
MyndbandHér er fjallað um hvað kynferðislega áreitni er og hvernig hún getur birst í hegðun og tali í vinnuumhverfinu, ásamt þeim neikvæðu áhrifum sem hún hefur.
Horfa
Kynbundin áreitni
Áreitni getur verið bæði kynferðisleg og/eða kynbundin. Kynbundin áreitni er hegðun sem tengist kyni þess sem fyrir henni verður og hefur þann tilgang eða þau áhrif að misbjóða virðingu viðkomandi og skapa aðstæður sem eru ógnandi, fjandsamlegar, niðurlægjandi, auðmýkjandi eða móðgandi fyrir viðkomandi. Kynbundin áreitni er alvarlegt mál sem stjórnendur og starfsfólk eiga að láta sig varða og bregðast við eins fljótt og kostur er þegar slík mál koma upp. Alvarleg tilvik áreitni geta fallið undir hegningarlög, jafnvel þótt einungis sé um eitt tilvik að ræða.
MyndbandHér er kynbundin áreitni útskýrð og farið yfir hvernig hún getur birst í samskiptum og hegðun í vinnuumhverfinu.
Horfa
Ofbeldi
Ofbeldi er hvers kyns hegðun sem leiðir til eða gæti leitt til líkamlegs eða sálræns skaða eða þjáninga þess sem fyrir henni verður, einnig hótun um slíkt, þvingun eða handahófskennda frelsissviptingu. Ofbeldi getur verið annaðhvort andlegt eða líkamlegt. Ofbeldi er alvarlegt mál sem stjórnendur og starfsfólk eiga að láta sig varða og bregðast við eins fljótt og kostur er þegar slík mál koma upp. Alvarleg tilvik ofbeldis geta fallið undir hegningarlög, jafnvel þótt einungis sé um eitt tilvik að ræða.
MyndbandHér er fjallað um ofbeldi í vinnuumhverfinu, bæði líkamlegt og andlegt, og ólíkar birtingamyndir þess.
HorfaHeimild: Efnið hér að ofan er fengið frá Vinnumálastofnun en frekari upplýsingar um áhættuþætti og afleiðingar má finna hér.