Einelti, áreitni og ofbeldi (EKKO)

Skammstöfunin EKKO stendur fyrir  einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni og ofbeldi. Mikilvægt er fyrir vinnustaði að fyrirbyggja og bregðast skjótt við ef uppvíst verður um slíka hegðun því hún hefur ekki einungis áhrif á heilsu, öryggi og starfsánægju starfsfólks heldur getur einnig skaðað vinnustaðamenningu til lengri tíma. Með skýrum reglum, fræðslu og viðbragðsáætlun er hægt að skapa öruggt og heilbrigt vinnuumhverfi þar sem starfsfólki líður vel.

Kynntu þér stuðningsefni fyrir stjórnendur og starfsfólk – þar á meðal leiðbeiningar, gátlista og úrræði sem hjálpa til við að koma í veg fyrir og takast á við slík mál faglega og með trúnaði.


 

EKKO
Skilgreiningar og birtingarmyndir
Einelti, áreitni og ofbeldi eru áhættuþættir sem geta haft veruleg áhrif á vellíðan starfsfólks. Því er mikilvægt að leggja áherslur á forvarnir og vera með skilvirk viðbrögð við kvörtunum og ábendingum um slíka hegðun.
Hlutverk og skyldur stjórnenda
Forvarnir og viðbrögð
Atvinnurekendum er skylt að tryggja öruggt vinnuumhverfi fyrir starfsfólkið sitt. Mikilvægt er að stjórnendur leggi áherslu á forvarnir og skjót viðbrögð við vandamálum sem upp koma.
Hlutverk og ábyrgð starfsfólks
Hvað getur starfsfólk gert?
Starfsfólk ber ábyrgð á eigin hegðun í vinnuumhverfinu og gegnir mikilvægu hlutverki við að stuðla að öruggu og heilbrigðu vinnuumhverfi.

 


 

Heimild: Efnið hér að ofan er fengið frá Vinnumálastofnun en frekari upplýsingar má finna hér á gagnvirku flæðiriti um feril mála.