Fólk og sjálfbærni
Samleið fólks og tækni
Stafrænar fjárfestingar skila sér aðeins ef mannauðurinn fylgir eftir. Stöðug færnigreining og þjálfun eru forsendur arðsemi. Með Ferðapúlsinum og Fræðslutorgi Hæfni fá stjórnendur tæki til að brúa bilið á milli tækni og hæfni, sem eykur starfsánægju og tryggir að liðsheildin sé tilbúin í áskoranir framtíðarinnar.
Sjálfbærni sem segull á hæfileikafólk
Snjall leiðtogi nýtir tækni til að auka sveigjanleika og efla samheldna vinnustaðamenningu, óháð starfsstöðvum. Þegar stafræn þróun og sjálfbærni mætast – þar sem snjalllausnir lágmarka kolefnisspor og auðlindasóun – skapast vinnustaður sem virkar sem segull á hæfileikafólk og meðvitaða gesti. Þetta er grunnurinn að samkeppnishæfni til framtíðar.

Er grunnurinn klár?
Geturðu rökstutt hvernig tæknin sem þú íhugar bætir annaðhvort upplifun gestsins eða eykur framlegð rekstursins?
Hefurðu átt samtalið við starfsfólkið um hvernig stafrænar breytingar munu létta þeirra daglega vinnu?
Hefurðu kortlagt hvaða þekkingu þarf að sækja út fyrir húsið til að forðast dýr mistök í upphafi?
Er reksturinn snjall?
Eru allar helstu upplýsingar á einum stað (CRM) svo þú getir tekið ákvarðanir byggðar á rauntímagögnum en ekki tilfinningu?
Hefurðu greint hvaða endurtekningarsömu verkferla má fela tækninni svo fólkið þitt fái meiri tíma með gestunum?
Hefurðu aðgang að mælaborði sem gerir þér kleift að bregðast strax við breytingum á markaði eða eftirspurn?
Er fólkið og framtíðin tryggð?
Ertu búin(n) að taka stöðuna með Ferðapúlsinum og opna á aðgang að fræðslutorginu til að efla stafræna hæfni þíns fólks?
Styður tæknin þín við ólíkar kynslóðir ólíkan bakgrunn og fjarvinnu án þess að fórna fyrirtækjamenningunni?
Eru stafrænu lausnirnar þínar að minnka kolefnisspor eða sóun í rekstrinum (t.d. með pappírslausum ferlum eða snjallorkunotkun)?