föstudagur, maí 22, 2026
Ársskýrsla 2025
Ársskýrsla Hæfnisetursins 2025 komin út

Ársskýrsla Hæfniseturs ferðaþjónustunnar fyrir starfsárið 2025 er nú komin út.
Um var að ræða viðburðaríkt ár þar sem áfram var unnið markvisst að uppbyggingu lausna sem styðja við hæfni, fagmennsku og gæði í íslenskri ferðaþjónustu.
Á meðal helstu verkefna ársins var innleiðing Ferðapúlsins, nýs mælitækis fyrir stafræna hæfni fyrirtækja, sem veitir mikilvæga innsýn í stöðu og þróun stafrænnar vegferðar greinarinnar. Jafnframt var lögð áhersla á þróun stafræna vinnusvæðisins á hæfni.is þar sem aðgengilegt stuðningsefni og sniðmát fyrir fyrirtæki hefur vaxið og eflst.
Á árinu voru haldnar fjölmargar vinnustofur og fræðsluviðburðir víðs vegar um landið, í nánu samstarfi við hagaðila ferðaþjónustunnar.
Mikil áhersla var lögð á samtal við atvinnugreinina og að tryggja að verkefni Hæfnisetursins endurspegli raunverulegar þarfir fyrirtækja.


Niðurstöður ársins benda til þess að vilji til framþróunar sé mikill, en einnig að áfram sé þörf á markvissri uppbyggingu stafrænnar hæfni og aukinni hagnýtingu tæknilausna í rekstri.
Fram undan eru fjölbreytt verkefni þar sem áhersla verður á áframhaldandi þróun stafrænna lausna, aukið aðgengi að fjölbreyttu stuðningsefni og enn frekara samstarf við greinina í takt við áherslur ferðamálastefnu til ársins 2030.
👉 Skýrsluna í heild sinni má lesa hér




