
Hvað er fyrirtækjamenning?
Fyrirtækjamenning birtist í „hvernig við gerum hlutina hérna“. Hún er samspil gilda, hegðunar, vinnubragða og viðhorfa sem móta daglega upplifun starfsfólks og viðskiptavina.
Í ferðaþjónustu skiptir menning sérstaklega miklu máli því þjónustan er mannleg, persónuleg og byggir á trausti og jákvæðri upplifun.
Sterk fyrirtækjamenning birtist m.a. í:
- samheldnu og öflugu starfsfólki
- skýrum viðmiðum og sameiginlegum gildum
- stöðugri, áreiðanlegri og vinalegri þjónustu
- árangri sem heldur áfram að byggjast upp þó álag og árstíðasveiflur séu miklar
Þegar menningin er skýr geta bæði nýir og reyndir starfsmenn tekið betri ákvarðanir – og skilað meiri gæðum í þjónustu.
Að byggja upp sterka fyrirtækjamenningu er samspil meðvitaðrar vinnu og lífræns ferlis. Hér eru nokkur lykilskref sem geta hjálpað ferðaþjónustufyrirtækjum að móta og styrkja menningu sína.

Góð starfsmannahandbók eflir fyrirtækjamenningu
Á stafrænu vinnusvæði okkar er einfalt að búa til eigin starfsmannahandbók

Hæfni TV
Á Hæfni TV finnurðu ýmis góð myndbönd sem snúa að fyrirtækjamenningu

Hvað finnst starfsfólkinu?
Hér finnurðu ýmsar kannanir sem snúa að starfsánægju og fræðsluþörfum starfsfólks