Starfsfólk ber ábyrgð á eigin hegðun og gegnir lykilhlutverki í öruggu vinnuumhverfi. Það má aldrei leggja í einelti, áreita kynferðislega, mismuna eða beita ofbeldi. Starfsfólk á að láta vita ef það verður vitni að eða verður fyrir slíkri hegðun. Kynntu þér öryggis- og heilbrigðisáætlun vinnustaðarins og hvar hún er aðgengileg.
Viðbrögð og stuðningur
Í öryggis- og heilbrigðisáætlun á að koma fram:
- Hvert starfsfólk getur leitað með kvörtun eða ábendingu
- Hvaða viðbrögðum og stuðningi má búast við
Ef áætlun vantar, leitaðu til stjórnenda eða sendu ábendingu til Vinnueftirlitsins.
Hugsanleg viðbrögð
- Setja mörk: Biddu samstarfsfólk að hætta óviðeigandi hegðun.
- Viðrun: Sumir vinnustaðir bjóða samtal til að ræða upplifun og viðra upplifun og áhyggjur af samskiptum.
Slík samtöl koma ekki í veg fyrir formlega kvörtun samkvæmt reglugerð um einelti, áreitni og ofbeldi.
Til að hefja formlegt ferli þarf að skýra málið og veita aðgang að gögnum í samræmi við persónuverndarlög.

Efni fyrir starfsfólkBlöðungur
OpnaHeimild: Efnið hér að ofan er fengið frá Vinnumálastofnun en frekari upplýsingar má finna hér.