Forvarnir
Atvinnurekandi þarf að meta hversu mikil áhætta er fyrir hendi í vinnuumhverfinu á að einelti, áreitni og ofbeldi komi þar upp. Matið er sett fram í skriflegu áhættumati. Í kjölfarið þarf atvinnurekandi að grípa til aðgerða til að koma í veg fyrir að áhættan raungerist þannig að einelti, áreitni og ofbeldi fái ekki þrifist. Sé það ekki hægt þarf að draga úr líkum þess eins og frekast er kostur. Slíkar aðgerðir kallast forvarnir og eru settar fram í áætlun um heilsuvernd og forvarnir ásamt viðbrögðum sem grípa skal til komi upp einelti, áreitni eða ofbeldi. Á hvort um sig að vera hluti af áætlun um öryggi og heilbrigði vinnustaðarins.
- Yfirlýsing (stefnu) vegna EKKO mála Atvinnurekandi þarf að lýsa því yfir við starfsfólk að einelti, kynferðisleg áreitni, kynbundin áreitni og ofbeldi verði ekki liðið á vinnustaðnum. Gott er að taka skýr dæmi um ólíkar birtingarmyndir EKKO.
- Viðbrögð við EKKO Þau segja til um þær aðgerðir sem grípa þarf til komi fram kvörtun um einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni eða ofbeldi í vinnuumhverfinu.
Efni fyrir atvinnurekendurBlöðungur
OpnaMikilvægt er að atvinnurekandi kynni sér vel efni reglugerðar um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum.
Dæmi um forvarnir:
- Stuðla að heilbrigðri vinnustaðamenningu og trausti
- Ganga á undan með góðu fordæmi
- Skapa vettvang fyrir viðrun
- Skilgreina samskiptaviðmið í samvinnu við starfsfólk með gerð samskiptasáttmála
Samskiptasáttmáli Fróðleiksmolar
OpnaViðbrögð
Þegar mál tengd einelti, áreitni eða ofbeldi koma upp eiga atvinnurekendur að bregðast fljótt við samkvæmt áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustaðnum þar sem koma fram viðbrögð í samræmi við reglugerð um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum.
Sjá nánar flæðirit um feril EKKO mála sem ætlað er að styðja við stjórnendur þegar upp koma mál tengd einelti, áreitni og ofbeldi – frá því að tilkynning berst og þar til að máli telst lokið.
Flæðiritinu fylgir gátlisti sem gott er að hafa til hliðsjónar til að tryggja góða málsmeðferð.
Atvinnurekandi þarf að sýna varfærni og nærgætni með virðingu og einkahagi hlutaðeigandi starfsfólks í huga í öllum aðgerðum sínum.
Gátlisti Fyrir stjórnendur við meðferð EKKO mála
Opna gátlistaViðrun
Viðrun eða samtal milli stjórnenda og starfsfólks getur verið góð leið til að draga úr líkum á að einelti, áreitni og ofbeldi eigi sér stað og viðgangist í vinnuumhverfinu.
Stjórnandi getur skapað vettvang fyrir starfsfólk til að viðra upplifun sína af vinnuumhverfinu, þar með talið samskipti við samstarfsfólk eða þriðja aðila. Hún gefur stjórnendum einnig tækifæri til að veita nauðsynlegar upplýsingar og stuðning svo sem hvað felst í málsmeðferð, ræða um skilgreiningar, ferli kvörtunar og hvaða aðilar komi að slíkri vinnu.
Dæmi um almennar aðgerðir sem atvinnurekandi getur ráðist í er meðal annars að:
- skerpa á starfslýsingu og ábyrgð starfsfólks
- auka fræðslu um einelti, áreitni og ofbeldi
- vinna að gerð samskiptasáttmála.
- huga að vinnustaðamenningu og jákvæðum áhrifaþáttum hennar.
Nánar um viðrunBlöðungur um viðrun
Opna pdf
Flæðirit um ferli EKKO mála
Tilgangur flæðiritsins er að styðja við stjórnendur þegar upp koma mál tengd einelti, áreitni og ofbeldi – frá því að tilkynning berst og þar til máli telst lokið.
Aðgerðir í ferlinu eru í samræmi við kröfur sem gerðar eru við úrlausn slíkra mála í reglugerð um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi. Því er aðeins um ákveðnar grunnaðgerðir að ræða.
Ferlinu fylgir gátlisti sem gott er að hafa til hliðsjónar til að tryggja góða málsmeðferð.
Hvað getur starfsfólk gert?Hlutverk og ábyrgð starfsfólks
Fara á síðu