Íslenskunám og annar stuðningur

Ferðaþjónustan byggir á góðum samskiptum, öflugri þjónustu og fjölbreyttum mannauði. Með því að styðja starfsfólk við að læra og nota íslensku má efla samskipti á vinnustað, bæta þjónustu við gesti, styrkja vellíðan starfsfólks og inngildingu í samfélagið. Hér er yfirlit yfir fjölbreyttar leiðir sem fyrirtæki í ferðaþjónustu geta nýtt sér til að efla íslenskuna – allt frá íslenskunámi og sjálfsnámi til stafrænnar fræðslu, fagorðalista og samfélagstengdra verkefna sem taka mið af vaktavinnu, ólíkum starfshlutverkum og þörfum greinarinnar.

Fjölbreyttar leiðir til að efla íslenskuna

1

Íslenskunám

2

Fagorðalistar

3

Sjálfsnám í íslensku

4

Stafrænar lausnir

5

Samfélagstengd íslenskukennsla

1.Íslenskunám

Fræðsluaðilar um allt land bjóða upp á fjölbreytt íslenskunámskeið á öllum stigum, frá byrjendum til lengra kominna. Námskeið eru ýmist staðbundin eða rafræn og standa þannig starfsfólki til boða óháð staðsetningu og vinnutíma. Oft eru tungumálanámskeið hönnuð með tilliti til ákveðinna starfa og/eða kennd í tungumálahópum. 

Flestir fræðsluaðilanna eru tilbúnir til að vinna með fyrirtækjum að því að hanna vefnámskeið sem mætir þörfum þeirra, jafnvel starfstengd m.t.t. fagorða, fyrir tiltekinn fjölda starfsfólks sem vill læra íslensku. Ef þú sérð ekki íslenskunámskeið auglýst í nágrenni við þitt fyrirtæki, geturðu alltaf haft samband við næstu símenntunarmiðstöð eða fræðsluaðila. Smelltu hér á kortið til að finna fræðsluaðila nærri þér.

Ekki gleyma að kanna möguleikana á styrkjum hjá stéttarfélögum og fræðslusjóðum! Fyrirtæki greiða iðgjald í starfsmenntasjóði og geta sótt um fyrirtækjastyrki til námskeiðahalds fyrir starfsfólk sitt eða vegna námskeiða sem starfsfólk sækir. Mörg þeirra endurgreiða allt að 90% af námskeiðsgjaldi.  (Meiri upplýsingar á vefnum Áttin.is)

Samkvæmt lögum um atvinnuréttindi útlendinga ber atvinnurekendum og stéttarfélögum að veita starfsfólki með tímabundið atvinnuleyfi upplýsingar um íslenskunámskeið sem þeim standa til boða.

Hægt er nálgast upplýsingar um ýmis íslenskunámskeið sem standa til boða með því að velja Íslensk tunga undir flokknum Nám og Námskeið hér á síðunni.

Dæmi um stafrænar lausnir í íslenskunámi

Ný leið til að læra íslensku
Bara tala
Býður upp á starfstengt íslenskunám og grunnnámskeið í íslensku fyrir vinnustaði.
Það er leikur að læra
Play Your Way to Iceland
Fræðsluvettvangur fyrir fólk sem vill kynna sér Ísland, tungumálið og menninguna.
Say hæ
TVÍK
Tækniknúinn íslenskukennari.
Skilaðu frá þér betri texta
Málfríður
Málfríður lagfærir stafsetningu, málfræði og stíl í texta á augabragði.
Aðgengileg á netinu
Íslensk nútímamálsorðabók
56 þúsund uppflettiorð, beygingar og hljóðritanir.
Sköpum íslenskuvænt samfélag
Gefum íslensku séns
Gerumst almannakennarar með því að tala íslensku, sýna þolinmæði og hlusta.

Íslenskunám

Fræðsluaðilar um allt land bjóða upp á fjölbreytt íslenskunámskeið á öllum stigum, frá byrjendum til lengra kominna. Námskeið eru ýmist staðbundin eða rafræn og standa þannig starfsfólki til boða óháð staðsetningu og vinnutíma.  Oft eru tungumálanámskeið hönnuð með tilliti til ákveðinna starfa og/eða kennd í tungumálahópum. 

Flestir fræðsluaðilanna eru tilbúnir til að vinna með fyrirtækjum að því að hanna vefnámskeið sem mætir þörfum þeirra, jafnvel starfstengd m.t.t. fagorða, fyrir tiltekinn fjölda starfsfólks sem vill læra íslensku. Ef þú sérð ekki íslenskunámskeið auglýst í nágrenni við þitt fyrirtæki, geturðu alltaf haft samband við næstu símenntunarmiðstöð eða fræðsluaðila. Smelltu hér á kortið til að finna fræðsluaðila nærri þér.

Ekki gleyma að kanna möguleikana á styrkjum hjá stéttarfélögum og fræðslusjóðum! Fyrirtæki greiða iðgjald í starfsmenntasjóði og geta sótt um fyrirtækjastyrki til námskeiðahalds fyrir starfsfólk sitt eða vegna námskeiða sem starfsfólk sækir. Mörg þeirra endurgreiða allt að 90% af námskeiðsgjaldi.  (Meiri upplýsingar á vefnum Áttin.is)

Samkvæmt lögum um atvinnuréttindi útlendinga ber atvinnurekendum og stéttarfélögum að veita starfsfólki með tímabundið atvinnuleyfi upplýsingar um íslenskunámskeið sem þeim standa til boða.


 


Fagorðalistar

Í samstarfi við hagaðila hefur Hæfnisetur ferðaþjónustunnar þróað sérhæfða fagorðalista sem nýtast starfsfólki í ferðaþjónustu í daglegu starfi. Í orðalistunum er að finna algeng orð og orðatiltæki sem notuð eru í greininni og geta þeir stuðlað að betri samskiptum á vinnustað sem og við ferðafólk sem hefur áhuga á að kynnast íslenskunni með því að læra stök orð. Orðalistarnir eru á þremur tungumálum og hægt er að hlusta á framburð orðanna á íslensku.

  • Fagorðalistar ferðaþjónustunnar eru fyrir móttöku, þrif og umgengni, eldhús, skoðunarferðir og akstur, afþreyingu og þjónustu í sal.
  • Fiskabúrið er hugsað fyrir starfsfólk í samskiptum við gesti t.d. á veitingahúsum og geymir það safn heita yfir matfisk, með myndum eftir Jón Baldur Hlíðberg. Fiskabúrið er á fjórum tungumálum.
  • Veggspjöld - Orðin okkar á íslensku eru veggspjöld byggð á fagorðalista ferðaþjónustunnar eru til á pdf formi til útprentunar. Einnig eru mögulegt að nálgast veggspjöldin hjá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar eða Samstökum ferðaþjónustunnar. Orðalistarnir eru á þremur tungumálum, íslensku, ensku og pólsku. 

 


Sjálfsnám í íslensku

Skipulagning vakta og boðun starfsfólks á íslenskunámskeið á vinnutíma getur verið flókin, sérstaklega í ferðaþjónustu þar sem vaktavinna er algeng. Sjálfsnám í íslensku er einföld leið og stendur starfsfólki til boða óháð staðsetningu og vinnutíma. Sjálfsnám getur innihaldið kennslustundir, prentvænt efni og leiðbeiningar um framburð.

Dæmi um leiðir í sjálfsnámi:

Hægt er að nálgast sjálfsnám í íslensku á síðu Hæfnisetursins: Nám og námskeið með því að velja valkostinn „Íslensk tunga“ í flokknum Námskeið fyrir ferðaþjónustu.

 


Stafrænar lausnir

Með aukinni tækni eru fjölbreyttar stafrænar lausnir til að læra orðaforða og æfa notkun íslenskunnar, s.s. öpp, myndbönd, netorðabækur ofl. Slíkur stuðningur nýtist fólki sem er að læra íslensku og samstarfsfólki þeirra.

Dæmi um stafrænan stuðning við að læra, nota og æfa íslensku: 

  • Bara tala byggir á gervigreind og íslenskri máltækni. Boðið er upp á starfstengt íslenskunám og grunnnámskeið í íslensku fyrir vinnustaði. (Sem stendur er Bara Tala aðeins í boði fyrri vinnuveitendur gegn endurgjaldi).
  • Memrise er vefsíða og app til að læra tungumál. Það býður uppá stutt myndbönd, æfingar og endurtekningar til að hjálpa fólki að muna orð og setningar.
  • Play Your Way to Iceland er fræðsluvettvangur fyrir fólk sem vill kynna sér Ísland, tungumálið og menninguna.
  • TVÍK er tæknivæddur íslenskukennari eða“stafrænn málhafi“ sem getur átt í samtölum við fólk, spjallað við það og veitt því endurgjöf um orðfæri þess og málbeitingu. Tvík geri fólki kleift að læra málið með því að leggja orð og málfræðireglur á minnið.
  • Málfríður er gagnlegur stuðningur við notkun íslensku, þar á meðal við að skrifa góðan texta, talgreiningu, hreinskrift á texta og svörun spurninga.
  • Íslensk nútímamálsorðabók er aðgengileg rafræn orðabók sem inniheldur 56 þúsund uppflettiorð, orðasambönd, orðskýringar, myndskreytingar, hljóðritanir á framburði flestra orðanna og tengla á beygingar orða.

 


Samfélagstengd íslenskukennsla

Samfélagstengt íslenskunám er gagnleg leið til að æfa íslensku í nærsamfélaginu, stuðla að inngildingu og um leið kynnast íbúum. Jafnframt skapar það tækifæri fyrir bæði starfsfólk og fyrirtæki til að styrkja staðbundna menningu og tungumálið um leið.  

  • Símenntunarmiðstöðvar, bókasöfn og félagasamtök bjóða oft upp á samfélagsleg verkefni fyrir fólk sem vill æfa eða læra íslensku.  Hægt er að hafa samband við skrifstofu sveitarfélagsins til að fá frekari upplýsingar um slík verkefni í nærsamfélaginu.
  • Tengsl við nærsamfélagið, til dæmis með íslenskukennslu og þjálfun, eru mikilvægur þáttur í sjálfbærri ferðaþjónustu með ávinning fyrir nærsamfélag, starfsfólk og fyrirtæki.

Dæmi um slík námskeið eru:  Gefum íslensku séns á Vestfjörðum, Icelandic Language Club á Akureyri og Kvennaborðið í Reykjavík