
Undirbúningur
Áður en nýr starfsmaður mætir til starfa ætti móttökuferlið að hefjast. Sendu honum móttökupakka með helstu upplýsingum og skjölum — t.d. móttökubréfi, aðgangi að innra neti eða samskiptaforriti, starfsmannahandbók og yfirliti yfir þjónustu og hlunnindi fyrirtækisins. Góður undirbúningur skapar jákvæða upplifun, eykur öryggi og byggir upp eftirvæntingu fyrir fyrsta starfsdeginum.

Upplýsingaflæði
Um leið og starfsmanni eru sendar nauðsynlegar upplýsingar frá fyrirtækinu þarf að kalla eftir ýmsum upplýsingum sem þurfa að liggja fyrir áður en vinna hefst varðandi atriði eins og bankaupplýsingar, séreignarsparnað og nýtingu persónuafsláttar. Einnig gæti verið þörf á öðrum skjölum eins og dvalarleyfi, starfsleyfi, prófskírteinum osfrv. Þá er gengið frá ráðningarsamningi, launakjör yfirfarin og starfslýsing afhent.

Skipulögð kynning
Fáðu til liðs við þig einn eða fleiri úr hópi reyndari starfsmanna til að þjálfa nýja starfsmanninn en ekki síður til að tryggja að hann komist inn í starfsmannahópinn. Tilvalið er að velja til verksins þá sem eru jákvæðir, þekkja verkefnin og vinnustaðinn vel, geta talað tungumál viðkomandi ef hægt er að koma því við og hafa áhuga á að leiðbeina öðrum. Ef fyrirtækið er með starfsmannahandbók er gott að fara yfir hana með starfsmanni og sýna hvar hún er aðgengileg ef spurningar vakna.

Starfstengd þjálfun
Tryggðu að nýi starfskrafturinn fái viðeigandi fræðslu og þjálfun til að koma sér inn í starfið. Það eykur öryggistilfinningu nýs starfskrafts að fá heildaryfirlit yfir þá fræðslu sem hefur verið skipulögð fyrir hann og hvenær hún er áætluð. Ef um erlendan starfskraft er að ræða þarf að hvetja viðkomandi til íslenskunáms og veita upplýsingar um þær bjargir sem standa til boða. Starfmenntasjóðir veita niðurgreiðslu fyrir fræðslu í fyrirtækjum.

Samskiptaþjálfun
Samskiptaþjálfun er mikilvæg þar sem hvert teymi og vinnustaður hefur sínar óskráðu reglur, sérkenni og samskiptahætti. Nýr starfsmaður aðlagast betur ef honum er kynnt vinnustaðamenningin sem fyrst. Gott er að teymið hittist t.d. yfir morgunkaffi og ræði á jákvæðan hátt um sín sérkenni, sérhæft tungutak og það sem er einkennandi fyrir vinnustaðinn. Þetta styrkir samskipti og flýtir fyrir hnökralausri aðlögun starfsmannsins.

Stuðningur og eftirfylgni
Mörg störf í ferðaþjónustu krefjast starfsreynslu til að skilja þarfir viðskiptavina. Til að undirbúa nýja starfsmenn, er gott að innleiða leiðsagnaráætlun þar sem þeir fylgjast með reyndum starfsmanni og geta spurt spurninga í rauntíma. Þetta styrkir tengsl við samstarfsfólk, eykur skilning á smáatriðum þjónustunnar og flýtir aðlögun. Best er að tiltekinn starfsmaður taki að sér mentorklutverk og beri ábyrgð á ferlinu — helst einhver með góða samskiptahæfni og þolinmæði.