Hæfnisetur ferðaþjónustunnar
Persónuvernd
Hér má lesa um meðferð persónuupplýsinga á vef Hæfnis, réttindi þín og hvert þú getur leitað með spurningar.
Persónuverndarstefna Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins (FA) nær einnig til starfsemi Hæfniseturs ferðaþjónustunnar.
Persónuverndarstefna FAUpplýsingar sem þú veitir okkur
- Fyrirspurnir
- Þegar þú sendir okkur fyrirspurn notum við upplýsingarnar sem þú gefur upp til að svara þér. Erindi úr eyðublöðum á vefnum berast í tölvupósti til starfsfólks Hæfnis.
- Skráning á viðburði
- Við notum nafn, netfang, vinnustað og upplýsingar um þátttöku til að halda utan um skráningu þína. Tengiliðaupplýsingar og upplýsingar um viðburðinn eru einnig sendar til Mailchimp til að halda utan um samskipti vegna viðburða.
- Birting námskeiða
- Þegar þú sendir inn námskeið notum við tengiliðaupplýsingar til að hafa samband vegna birtingar. Námskeiðslýsing og myndir eru yfirfarnar fyrir birtingu. Tengiliðaupplýsingar vegna umsýslu eiga ekki heima í opinberri námskeiðslýsingu.
Vafrakökur og myndbönd
Vefurinn man val þitt á tungumáli og vafrakökum. Vafrakökur til að mæla notkun vefsins og árangur auglýsinga eru aðeins notaðar með samþykki þínu.
Myndbönd frá YouTube og annað innfellt efni hlaðast aðeins þegar þú velur að spila eða birta efnið. Við það fær þjónustuveitandinn meðal annars IP-tölu þína og kann að nota eigin vafrakökur.
Þú getur breytt eða afturkallað samþykki með því að velja „Breyta vali á vafrakökum“ neðst á vefnum og síðan „Hafna“. Þú getur áfram skoðað vefinn þótt þú hafnir valfrjálsum vafrakökum.
Nánar um vafrakökurSpjall á vefnum
Spjallið notar þjónustu OpenAI. Þegar þú opnar það tengist vefurinn þjónustunni, sem vinnur úr skilaboðum þínum og tæknilegum tengiupplýsingum til að svara þér.
Forðastu að senda viðkvæmar persónuupplýsingar eða trúnaðarmál í spjallið. Að loka spjallinu eyðir ekki skilaboðum hjá þjónustuveitanda. Þú getur einnig sent okkur tölvupóst.
Varðveisla og miðlun
Hæfni nýtir þjónustuveitendur við rekstur vefsins, skráningar, tölvupóst og spjall. Þeir vinna úr þeim upplýsingum sem þarf til að veita viðkomandi þjónustu. Vinnsla getur farið fram utan Evrópska efnahagssvæðisins.
Til að fá nánari upplýsingar um hversu lengi gögn eru varðveitt, á hvaða heimild vinnsla byggir og hvernig þau eru vernduð geturðu haft samband við okkur. Tilgreindu þá hvaða þjónustu eða viðburð erindið varðar.
Réttindi þín
Samkvæmt persónuverndarlögum geturðu, eftir því sem við á:
- Óskað eftir aðgangi að persónuupplýsingum þínum og látið leiðrétta rangar upplýsingar.
- Óskað eftir eyðingu upplýsinga, takmörkun á vinnslu þeirra eða flutningi til annars aðila.
- Andmælt vinnslu og afturkallað samþykki þegar vinnslan byggir á því.
Afturköllun samþykkis hefur ekki áhrif á vinnslu sem fór fram áður en það var afturkallað.
Ef þú telur að meðferð persónuupplýsinga þinna brjóti gegn lögum geturðu kvartað til Persónuverndar.
Hafðu samband
Sendu okkur línu ef þú hefur spurningar um persónuvernd eða vilt nýta réttindi þín. Gott er að taka fram hvaða erindi eða þjónustu málið varðar svo við getum aðstoðað þig.
haefni@haefni.is