
Í þessum flokki er fólk frá Danmörku ásamt Færeyjum og Grænlandi, Finnlandi ásamt Álandseyjum, Noregi og Svíþjóð.
Starfsfólk frá Norðurlöndunum
Ferlið
Starfsmaður sækir um kennitölu og atvinnurekandi staðfestir ráðningarsamband. Ferlið er mismunandi eftir lengd ráðningarsambands.
Starf skemur en 6 mánuði
Norrænn ríkisborgari sem ætlar að starfa á Íslandi skemur en 6 mánuði sækir um kerfiskennitölu hjá Skattinum. Viðkomandi þarf að mæta með útfyllta umsókn, undirritaða af bæið umsækjenda og atvinnurekanda, á einn af afgreiðslustöðum Skattsins og hafa vegabréf eða ferðaskilríki meðferðis. Eyðublaðið má finna á heimasíðu skattsins hér: RSK 3.30 Application of a system ID number
ATH. Kerfiskennitala veitir engin réttindi á Íslandi og staðfestir ekki rétt til dvalar.
Starf umfram 6 mánuði
Norrænn ríkisborgari sem hyggst starfa hér lengur en 6 mánuði þarf að skrá lögheimili á Íslandi innan 7 daga frá komu til landsins.
- Fyrsta skref er að fylla út rafræna umsókn í umsóknargátt.
- Umsóknin er ekki tekin til vinnslu fyrr en umsækjandi mætir til Þjóðskrár Íslands eða á næstu lögreglustöð með vegabréf eða ferðaskilríki (með amk. 6 mánuði eftir af gildistíma), fæðingarvottorð og/eða hjúskapavottorð.
- Lesa meira um ferlið á vef Þjóðskrár hér.
Mikilvægt er að muna atvinnurekandi þarf að staðfesta ráðningarsamband vegna umsóknar hjá Þjóðskrár Íslands.
Sótt um kerfiskennitölu
Gerð ráðningarsamnings
Skráning lögheimilis
Rafræn skilríki og stofnun bankareiknings
Sjúkratryggingar
Vinnustaðaskírteini
Sótt um kerfiskennitölu
Gerð ráðningarsamnings
Skráning lögheimilis
Rafræn skilríki og stofnun bankareiknings
Sjúkratryggingar
Vinnustaðaskírteini
1.Sótt um kerfiskennitölu
Norrænn ríkisborgari sem ætlar að starfa á Íslandi skemur en 6 mánuði sækir um kerfiskennitölu hjá Skattinum. Viðkomandi þarf að senda inn útfyllta umsókn, undirritaða af bæði umsækjenda og atvinnurekanda á netfangið: kerfiskennitolur@skatturinn.is eða mæta á einhverja af starfstöðvum Skattsins og hafa vegabréf eða ferðaskilríki meðferðis.