Leiðbeiningar vegna ráðninga erlends starfsfólks
Erlendir ríkisborgarar sem koma til starfa innan ferðaþjónustunnar þurfa að sækja um ýmis leyfi og réttindi. Mikilvægt er að hefja umsóknir tímanlega því ferlið getur tekið allt að sex mánuðum. Leiðbeiningar okkar auðvelda stjórnendum og starfsfólki ráðningarferlið með því að útskýra hvert skref í ferlinu.

Ánægt starfsfólk skapar gott orðspor – hér, þar og alls staðar
Ánægt starfsfólk skapar gott orðspor – hér, þar og alls staðar
Við ráðningar erlends starfsfólks er mikilvægt að þekkja viðeigandi reglur og ferli, sem geta verið mismunandi eftir því hvort umsækjendur koma frá EES/EFTA-löndum eða utan þeirra. Atvinnurekendur þurfa að geta leiðbeint starfsfólki sínu og tryggt að ráðningarferlið gangi hnökralaust fyrir sig.
Hæfnisetur ferðaþjónustunnar, í samstarfi við Vinnumálastofnun, SAF, ASÍ og ferðaþjónustufyrirtæki, hefur útbúið fjöltyngdar leiðbeiningar (sjá tungumálahnapp neðst til hægri) fyrir atvinnurekendur og erlenda starfsmenn. Þær auðvelda aðgengi að öllum helstu upplýsingum.
Atvinnurekendur eru hvattir til að kynna sér ábyrgð sína í umsóknarferlinu og vísa erlendu starfsfólki á leiðbeiningarnar til upplýsinga og undirbúnings.




