Starfsfólk innan EES/EFTA

Starfsfólk innan EES/EFTA

Lönd Evrópska efnahagssvæðisins og EFTA samnings eru: Austurríki, Belgía, Búlgaría, Danmörk, Eistland, Finnland, Frakkland, Færeyjar, Grikkland, Holland, Írland, Ítalía, Króatía, Kýpur, Lettland, Liechtenstein, Litháen, Lúxemburg, Malta, Noregur, Portúgal, Pólland, Rúmenía, Slóvakía, Slóvenía, Spánn, Svíþjóð, Sviss Tékkland, Ungverjaland og Þýskaland.


 

Starfsfólk innan EES/EFTA

Ferlið

Starfsmaður sækir um kennitölu og atvinnurekandi staðfestir ráðningarsamband. Ferlið er mismunandi eftir lengd ráðningarsambands.

Starf skemur en 3-6 mánuði 
EES/EFTA ríkisborgari sem ætlar að starfa á Íslandi skemur en 3 mánuði sækir um kerfiskennitölu hjá Skattinum. Viðkomandi þarf að mæta með útfyllta umsókn, undirritaða af bæði umsækjenda og atvinnurekanda, á einn af afgreiðslustöðum Skattsins og hafa vegabréf eða ferðaskilríki meðferðis. Nánari upplýsingar um kerfiskennitölur má finna á vef Þjóðskrár Íslands: hér og eyðublaðið má finna á heimasíðu Skattsins hér: RSK 3.30 Application of a system ID number.   

ATH. Kerfiskennitala veitir engin réttindi á Íslandi og staðfestir ekki rétt til dvalar.

Starf umfram 6 mánuði
 EES/EFTA ríkisborgari sem hyggst starfa hér lengur en 3-6 mánuði þarf að skrá lögheimili á Íslandi og sækja um kennitölu til Þjóðskrár Íslands.

  1. Fyrsta skref er að fylla út rafræna umsókn í umsóknargátt.
  2. Umsóknin er ekki tekin til vinnslu fyrr en umsækjandi mætir til Þjóðskrár Íslands eða á næstu lögreglustöð með vegabréf eða ferðaskilríki (með amk. 6 mánuði eftir af gildistíma), fæðingarvottorð og/eða hjúskapavottorð.
  3. Lesa meira um ferlið á vef Þjóðskrár hér.
     
Mikilvægt er að muna að atvinnurekandi þarf að staðfesta ráðningarsamband vegna umsóknar hjá Þjóðskrá Íslands.
1

Sótt um kerfiskennitölu

2

Ráðningarsamningur

3

Skráning lögheimilis

4

Vinnuveitendagátt

5

Vottorð um starfstímabil á Íslandi

6

Rafræn skilríki og stofnun bankareiknings

7

Sjúkratryggingar

8

Vinnustaðaskírteini

1.Sótt um kerfiskennitölu

Starf í 3-6 mánuði
EES/EFTA ríkisborgarar sem ætla að starfa á Íslandi skemur en 3-6 mánuði sækja um kerfiskennitölu hjá Skattinum. Viðkomandi þarf að mæta með útfyllta umsókn, undirritaða af bæið umsækjenda og atvinnurekanda, á einn af afgreiðslustöðum Skattsins og hafa vegabréf eða ferðaskilríki meðferðis. 

ATH. Kerfiskennitala veitir engin réttindi á Íslandi og staðfestir ekki rétt til dvalar.