Ríkisborgarar utan EES/EFTA svæðisins sem vilja starfa á Íslandi þurfa að fá atvinnuleyfi og dvalarleyfi til að geta dvalist löglega á Íslandi.

Útlendingastofnun sér um úthlutun dvalarleyfa og vegabréfsáritana á Íslandi. Umsóknum ber að skila til Útlendingastofnunar á höfuðborgarsvæðinu en til sýslumanns viðkomandi umdæmis á landsbyggðinni.

 


 

Starfsfólk utan EES/EFTA

Ferlið

Atvinnurekandi sem hyggst ráða erlendan starfsmann frá ríki utan EES/EFTA svæðisins sem ekki er nú þegar með dvalarleyfi á Íslandi, gerir ráðningarsamning við starfsmanninn og sendir umsókn um tímabundið dvarlarleyfi vegna atvinnu til Útlendingastofnunar, ásamt öllum nauðsynlegum fylgigögnum (umsókn um atvinnuleyfi þ.m.t.). Starfsmaður er umsækjandi, en hlutverk atvinnurekandans er að leggja umsóknina inn til Útlendingastofnunar áður en viðkomandi  kemur til landsins.  

Starfsmaður má alls ekki hefja starf áður en atvinnuleyfi er gefið út. Það kann að leiða til synjunar á atvinnuleyfi og jafnvel sektar eða fangelsisdóms fyrir bæði atvinnurekanda og starfsmann.

  1. Atvinnuleyfi er yfirleitt gefið út til eins árs í senn en þó aldrei til lengri tíma en dvalarleyfi eða ráðningarsamningur gerir ráð fyrir. Vinnumálastofnun tekur við gögnum frá Útlendingastofnun og veitir atvinnuleyfið.
  2. Eftir að erlendi starfsmaðurinn kemur til landsins þarf hann að mæta til Útlendingastofnunar (eða sýslumanns utan höfuðborgarsvæðisins) með vegabréf að láta taka mynd af sér í dvalarskírteini og klára skráninguna.
  3. Atvinnuleyfið er skilyrt við tiltekinn atvinnurekanda svo vilji starfsmaður skipta um vinnu þarf að sækja um nýtt atvinnuleyfi.  Starfmaður má ekki hefja starf hjá nýjum atvinnurekanda fyrr en nýtt leyfi liggur fyrir.

Hér á vef Work in Iceland má finna einfalda skýringu á ferlinu á ensku.  

1

Tímabundið dvalarleyfi vegna atvinnu

2

Undanþágur frá atvinnuleyfi vegna skammtímavinnu

3

Ráðningarsamningur

4

Dvalarleyfi á Íslandi

5

Rafræn skilríki og stofnun bankareiknings

6

Heilsufarsskoðun

7

Sjúkratryggingar

8

Vinnustaðaskírteini

1.Tímabundið dvalarleyfi vegna atvinnu

Ef dvalarleyfi er ekki til staðar er hægt að sækja um tímabundið dvalarleyfi vegna atvinnu fyrir ríkisborgara utan EES/EFTA svæðisins samkvæmt eftirfarandi skilyrðum. Þessi leið er gjarnan nýtt  af ferðaþjónustufyrirtækjum:  

  • Vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar
  • Vegna skorts á starfsfólki
  • Fyrir sérhæfða starfsmenn á grundvelli samstarfs- eða þjónustusamnings

Það er mikilvægt að muna:

Starfsmaður sækir um með aðstoð atvinnurekanda sem þarf að undirrita umsókn og skila henni inn ásamt fylgigögnum til Útlendingastofnunar, áður en viðkomandi kemur til landsins og hefur störf.

Umsókn um tímabundið atvinnuleyfi ásamt öllum nauðsynlegum gögnum skal skila til Útlendingastofnunar Dalvegi 18, 201 Kópavogi í bréfformi, annað hvort með pósti eða í póstkassa í móttökunni.

Eftirfarandi skilyrði þurfa ávallt að vera uppfyllt svo Vinnumálastofnun sé heimilt að veita tímabundið atvinnuleyfi:

  • Umsókn um tímabundið atvinnuleyfi undirrituð af atvinnurekanda og starfsmanni.
  • Ráðningarsamningur milli atvinnurekenda og starfsmanns undirritaður af atvinnurekenda og starfsmanni.
  • Umsögn viðeigandi stéttarfélags. (Sjá reit IV í umsókn)

Enn fremur þurfa viðeigandi sérskilyrði hverrar tegundar af tímabundnu atvinnuleyfi að vera uppfyllt. Nánari upplýsingar um sérskilyrði hverrar tegundar er að finna á vef Vinnumálastofnunar