Þátttaka og þjálfun starfsfólks

Öryggisáherslur og vinnuvernd þurfa að vera hluti af daglegri starfsemi og allir þurfa að taka þátt. Vertu fyrirbyggjandi í stað þess að bregðast við og ýttu á þann hátt undir sömu ábyrgðartilfinningu fyrir öryggi hjá starfsfólkinu. Greindu reglulega nýjar áhættur sem geta komið fram, bæði með teymi stjórnenda og með starfsfólki. Bjóddu uppá umræður reglulega t.d. á starfsmannafundum eða sérstökum öryggisfundum þar sem starfsfólk er hvatt til samtals þar sem það getur komið með tillögur að mögulegum lausnum eða úrbótum á öryggisferlum. Fyrirtæki sem hafa 10 starfsmenn eða fleiri skulu tilnefna öryggisvörð og starfsmenn kjósa öryggistrúnaðarmann úr sínum hópi. Nánar má lesa um það á Vinnumarkaðsvef SA. Þjálfaðu starfsfólkið þitt Leggðu áherslu á forvarnir og hafðu skýra þjálfunaráætlun fyrir nýtt og núverandi starfsfólk. Áætlunin ætti að gera grein fyrir grunnatriðum sem allir þurfa að læra, og skilgreina hvernig fyrirtækið ætlar að uppfæra færnina reglulega. Áætlunin ætti bæði að upplýsa starfsfólk um öryggisverkferla og veita viðeigandi öryggisþjálfun. Gerðu verklegar æfingar með starfsfólkinu, byggðar á raunverulegum atburðarásum. Sjá dæmi um öryggisþjálfun í námskeiðsyfirliti hér á (vantar síðu inn)