Hanna Katrín Friðriksson

STAFRÆNT VINNUSVÆÐI

Aukin áhersla á stafrænar lausnir í ferðaþjónustu á alþjóðavísu sem og hérlendis var hvatning til þess að þróa gagnvirkar lausnir á hæfni.is fyrir hin ýmsu sniðmát eins og t.d. gátlista, starfsmannahandbækur og stefnur. Þróunaraðili var ráðinn í tímabundið verkefni eftir að styrkur fékkst frá Ferðamálastofu og starfsmenntasjóðunum Landsmennt, Starfsafli og SVS. Vorið 2024 opnaði svo Hæfnisetrið nýtt stafrænt vinnusvæði á heimasíðu sinni fyrir aðila ferðaþjónustunnar og tíu sniðmát eru þegar aðgengileg þar. Svæðið er opið og aðgengilegt öllum án endurgjalds. Með svæðinu leggur Hæfnisetrið áherslu á að styðja við stafræna umbreytingu atvinnugreinarinnar og stefnir á áframhaldandi þróun stafrænna lausna fyrir ferðaþjónustu til framtíðar.

STARFSMANNAHANDBÓK

Stór áfangi náðist á árinu þegar rafrænt sniðmát að starfsmannahandbók leit dagsins ljós. Í samtölum og fyrir- tækjaheimsóknum Hæfnisetursins undanfarin ár hefur þörfin á sniðmáti fyrir starfsmannahandbók ítrekað komið í ljós. Þetta nýja sniðmát byggir á reynslu fyrir- tækja innan greinarinnar sem þegar hafa unnið starfs- mannahandbækur, auk rýni og endurgjafar frá sam- starfsaðilum innan ferðaþjónustunnar. Sniðmátið hentar öllum litlum og meðalstórum ferðaþjónustufyrirtækjum og er aðgengilegt á stafrænu vinnusvæði hæfni.is. Nú þegar hafa á annað hundrað notendur nýtt sér sniðmátin sem eru í boði á stafræna vinnusvæðinu. Hæfnisetrið vinnur markvisst að því að kynna lausnina og hefur meðal annars verið með kynningar fyrir allar símenntunarstöðvar landsins og stefnt er á að bjóða upp á opnar vinnustofur reglulega yfir árið.

Ferðapúlsinn Stafrænt

Á vormánuðum hafði Hæfnisetur ferðaþjónustunnar frumkvæði að því að setja saman vinnuhóp með aðilum frá Ferðamálastofu, Markaðsstofum landshlutanna og Íslenska ferðaklasanum. Verkefni vinnuhópsins var að greina með hvaða hætti væri hægt að styðja við stafræna umbreytingu ferðaþjónustunnar til aukinnar samkeppnishæfni á alþjóðavísu. Ákveðið var að fasaskipta verkefninu í þrennt: greiningu, val á leiðum og innleiðingu. Framkvæmd var könnun og viðtöl voru tekin við aðila sem starfa innan greinarinnar sem og þjónustuaðila sem hafa sérþekkingu á stafrænum þörfum greinarinnar. Niðurstaðan var þríþætt:

  1. Fræðslutorg – markmið að bjóða upp á vegvísir í átt að aukinni stafrænni hæfni innan ferðaþjónustunnar
  2. Greiningartól – markmið að bjóða upp á verkfæri sem kannar færni fyrirtækisins og vísar á viðeigandi leiðir til aukinnar stafrænnar hæfni
  3. Stafrænn leiðtogi að láni

Valið var að vinna með lausn eitt og tvö til að byrja með. Varðandi fræðslutorg var sú leið valin að þróa og innleiða tól sem svarar greiningarþörfum. Gerður var samningur við danskt fyrirtæki MapUs, sem býður upp á hugbúnað fyrir sjálfsmat á stafrænni hæfni. Lausnin fékk heitið Ferðapúlsinn-stafrænt. Ferðapúlsinn saman- stendur af sjálfsmati sem stjórnendur innan ferðaþjónustunnar geta nýtt til þess að sjá núverandi stöðu auk aðgengis að fræðslutorgi sem inniheldur gagnlegar upplýsingar og leiðbeiningar til aukinnar stafrænnar hæfni.

Á árinu 2025 verður lögð áhersla á að fá sem flest ferðaþjónustufyrirtæki til að taka þátt í könnuninni til að fá annars vegar yfirlit yfir þarfir íslenskrar ferðaþjónustu heilt yfir hvað varðar stafræna hæfni og hins vegar fyrir hvert landsvæði fyrir sig. Það mun einfalda hagaðilum að mæta þjálfunarþörfum greinarinnar á markvissan og árangursríkan hátt.

Stafrænn greiningarhringur