FERÐAMÁLASTEFNA OG AÐGERÐIR TIL ÁRSINS 2030

AÐKOMA HÆFNISETURS FERÐAÞJÓNUSTUNNAR

Með aðgerðaáætlun, sem er hluti ferðamála- stefnu, verður framtíðarsýn, áherslum og mark- miðum ferðamálastefnu fylgt eftir til 2030 með skilgreindum, kostnaðarmetnum og tímasettum aðgerðum. Hæfnisetrið tók þátt í undirbúnings- vinnu fyrir aðgerðaáætlun með setu í vinnuhópum varðandi hæfni og gæði. Í þeirri vinnu nýttust vel gögn frá Hæfnisetrinu, sérstaklega varðandi þörf og áherslur í uppbyggingu á námi fyrir starfsgreinina.

Skipan í starfshópa vegna aðgerða hófst í lok árs 2024. Hæfnisetrið á beina aðkomu að tveimur starfshópum, annars vegar starfshópi um eflingu náms í ferðaþjónustu þvert á skólastig og aukið aðgengi að námi (aðgerð E.2) og hins vegar starfshópi um alþjóðlegt nám í afþreyingartengdri ferðaþjónustu með áherslu á sjálfbærni (aðgerð E.4). Í þeirri aðgerð leiðir það vinnu hópsins.

Hæfnisetur ferðaþjónustunnar tengist fleiri að- gerðum í áætluninni með gagnamiðlun og upp- lýsingagjöf. Einnig hefur verið litið til verkfæra og lausna sem þegar hafa verið þróaðar sem hluta af úrlausnum í tilteknum verkefnum.