HANNA KATRÍN FRIÐRIKSSON atvinnumálaráðherra

MIKILVÆGASTA ATVINNUGREIN LANDINS

Hanna Katrín Friðriksson

Ferðaþjónusta er ein mikilvægasta atvinnugrein landsins og lykilþáttur í verðmætasköpun og atvinnuuppbyggingu víða um land. Hún byggir á fólkinu sem starfar í greininni, á þekkingu þess, fagmennsku og getu til að veita framúrskarandi þjónustu í síbreytilegu umhverfi. Á árinu 2024 kom enn betur í ljós hve mikil áhrif alþjóðleg þróun hefur á starfsskilyrði ferðaþjónustunnar. Óstöðugt efnahagsumhverfi, stríðsátök, loftslagsáskoranir og ör tækniþróun kallar á aukna færni, aðlögunarhæfni og framsýni í rekstri og mannauðsmálum greinarinnar. Því er mikilvægt að fyrirtæki og starfsfólk í ferðaþjónustu hafi greiðan aðgang að efni sem styður við þá vegferð. Þar gegnir Hæfnisetur ferðaþjónustunnar lykilhlutverki.

Hæfnisetrið hélt áfram öflugu starfi á árinu við þróun hagnýtra verkfæra og fræðslu sem nýtist fyrirtækjum og starfsfólki um land allt. Meðal markverðra verkefna er innleiðing stafræns Ferðapúls sem veitir innsýn í stafræna stöðu fyrirtækja og styður þau í umbótum og þróun, með það að markmiði að bæta þjónustugæði, auka skilvirkni og efla samkeppnishæfni greinarinnar.

Stefna stjórnvalda í ferðamálum til ársins 2030 setur fram skýra framtíðarsýn um sjálfbæra, arðsama og samkeppnishæfa ferðaþjónustu í sátt við náttúru og samfélag. Mikil áhersla er þar lögð á að efla menntun og hæfni í greininni. Þegar hafa verið skipaðir starfshópar sem vinna að því að greina stöðu náms í ferðaþjónustu, móta tillögur um þróun námsleiða á öllum skólastigum og gera starfs- og námsleiðir aðgengilegri og sýnilegri fyrir fjölbreyttan hóp fólks. Þá er jafnframt lögð áhersla á að styrkja tengsl menntakerfis og atvinnulífs, efla kynningu og aðgengi að raunfærnimati og tryggja að nám í ferðaþjónustu verði þrepaskipt, hagnýtt og sveigjanlegt. Gert er ráð fyrir að niðurstöður úr þessari vinnu liggi fyrir í lok árs 2025 og verði mikilvægur grunnur að áframhaldandi þróun náms og hæfniuppbyggingar í greininni.

Starf Hæfniseturs ferðaþjónustunnar styður með öflugum hætti við þessa framtíðarsýn. Í samstarfi við áfangastaðastofur landshlutanna, fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar, atvinnulífið og menntastofnanir hefur Hæfnisetrið unnið að því að þróa nýjar námsleiðir, auka aðgengi fyrir þá sem þegar starfa í greininni og styðja fjölbreyttan hóp fólks, til þátttöku og framþróunar í ferðaþjónustu.

Við eigum sameiginlega framtíðarsýn um íslenska ferðaþjónustu sem leiðandi atvinnugrein á sviði gæða og sjálfbærni. Hæfni, menntun og fagmennska verða áfram lykilstoðir í að styrkja stöðu hennar til framtíðar. Ég vil færa Hæfnisetri ferðaþjónustunnar, samstarfsaðilum þess og öllu því öfluga starfsfólki sem starfar í greininni innilegar þakkir fyrir mikilvægt og árangursríkt starf á árinu 2024 og hlakka til áframhaldandi samstarfs við að láta sýnina verða að veruleika.

Aurora background

UM HÆFNISETUR FERÐAÞJÓNUSTUNNAR

Hæfnisetur ferðaþjónustunnar starfar á forsendum ferðaþjónustunnar við að efla hæfni og gæði í ferðaþjónustu. Í stýrihópi sitja fulltrúar frá Samtökum ferðaþjónustunnar (SAF), Alþýðusambandi Íslands (ASÍ) og Ferðamálastofu, auk atvinnuvegaráðuneytisins (ATRN). Unnið er samkvæmt þjónustusamningi við ATRN og gildir samningurinn til loka árs 2026. Hæfnisetrið er vistað hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins (FA)

FAGMENNSKA – SAMVINNA – LAUSNIR

HLUTVERK HÆFNISETURSINS SAMKVÆMT SAMNINGI

  • Að greina fræðsluþarfir og þróa lausnir (verkfæri og stuðningsefni) til að auka hæfni og gæði innan ferðaþjónustunnar í samstarfi við atvinnugreinina og aðra hagsmunaaðila.
  • Vinna með samstarfs- og hagsmunaaðilum við að þróa, innleiða og markaðssetja lausnir Hæfniseturs ferðaþjónustunnar.
  • Veita starfshópi um alþjóðlegt nám í afþreyingartengdri ferðaþjónustu, með áherslu á sjálfbærni forystu. Verkefnið byggir á aðgerð E.4. í Ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun til ársins 2030. Markmið aðgerðarinnar er að Ísland verði framarlega í alþjóðlegu námi í afþreyingartengdri og nærandi ferðaþjónustu þar sem sjálfbærni-, öryggis- og gæðamál eru í forgrunni. Starfshópurinn skal vinna að því að hér á landi verði boðið upp á nám í ferðaþjónustu, með alþjóðlega viðurkenndri prófgráðu, í þeim tilgangi að auka fagmennsku innan greinarinnar, ásamt því að styrkja ásýnd og ímynd íslenskrar ferðaþjónustu.
  • Vinna að og taka þátt í öðrum verkefnum er lúta að hæfni og gæðum sem tengjast aðgerðaáætlun í ferðaþjónstu.
  • Tengja vinnu Hæfnisetursins við starf og stefnumótun svæðisbundinna stoðkerfa t.a.m. markaðsstofur landshlutanna.
  • Þróa, fylgja eftir, markaðssetja og styðja við framkvæmd á þrepaskiptu starfsnámi í ferðaþjónustu.
  • Veita ráðgjöf til stjórnenda, koma á samstarfi og styðja við ferðaþjónustufyrirtæki í að vera sjálfbær í uppbyggingu á hæfni starfsfólks.
  • Gera hæfni starfsfólks sýnilega og staðfesta hæfni sem aflað hefur verið á vinnumarkaði í samstarfi við fyrirtæki í ferðaþjónustu.
  • Auka hæfni stjórnenda og starfsfólks í ferðaþjónustu til nýsköpunar, s.s. á sviði öryggis, heilsu, sjálfbærni og stafrænna lausna.
  • Vinna að aukinni notkun starfsfólks á íslensku í ferðaþjónustu í samvinnu við stjórnendur fyrirtækja og aðra hagsmunaaðila m.a. til að stuðla að sýnileika tungumálsins í samstarfi við fyrirtæki í atvinnugreininni.

HAUKUR HARÐARSON verkefnastjóri

VERKEFNASTJÓRI GERIR UPP ÁRIÐ

Hanna Katrín Friðriksson

Áttunda starfsár Hæfniseturs ferðaþjónustunnar hefur verið viðburðaríkt. Nýr samningur var gerður við atvinnuvegaráðuneytið sem tryggir áframhaldandi uppbyggingu á þeim góða grunni sem skapast hefur á síðastliðnum árum. Eitt af hlutverkum Hæfnisetursins er að hlusta eftir hverjar þarfirnar eru hjá greininni hverju sinni og þar kemur skýrt fram að þörf er fyrir víðtækan stuðning og lausnir til aukinnar fagmennsku. Því hefur áhersla Hæfnisetursins að undanförnu verið lögð á þróun verkfæra sem styðja meðal annars við öryggismál, sjálfbærni, íslenska tungu og stafrænar lausnir. Öflugar nýjar lausnir voru kynntar á árinu eins og tilraunaverkefnið Fræðsla til framtíðar, notendavænt sniðmát að starfsmannahandbók og fjölbreytt stuðningsefni fyrir íslenska tungu. Einnig var ánægjulegt að sjá námslínu í ferðaþjónustu verða að veruleika og raunfærnimat í tengslum við hana. Sýnileiki Hæfnisetursins jókst með þátttöku og samstarfi á fjölmörgum viðburðum sem og með stefnumiðaðri markaðssetningu. Fram undan eru áframhaldandi fjölbreytt verkefni sem lúta að hæfni og gæðum í takt við áherslur greinarinnar

Öflugt teymi Hæfniseturs ferðaþjónustunnar hefur starfað af drifkrafti og mikilli hugmyndauðgi að verkefnum ársins. Samstarfsaðilar og stýrihópur eiga einnig þakkir skyldar fyrir gott samstarf. Við hlökkum til að vinna áfram með ykkur öllum með það að markmiði að Hæfnisetrið haldi áfram að vaxa og dafna í takt við aukna fagmennsku og þroska í ferðaþjónustunni.

Hanna Katrín Friðriksson