FRÆÐSLA TIL FRAMTÍÐAR
“Frábært skipulag og skýr fyrirmæli frá verkefnastjóra. Verkefnið skilaði nákvæmlega því sem við ætluðum okkur og gott betur! Ég hef tekið þátt í mörgum svipuðum verkefnum, en þetta hefur skilað mestum árangri!“
Auður Vala Gunnarsdóttir,
hótelstjóri Blábjörg Resort
Tilraunaverkefnið Fræðsla til framtíðar hófst á árinu en það er samstarfsverkefni Hæfni- setursins og starfsmenntasjóðanna Landsmenntar, Starfsmenntasjóðs verslunar- og skrif- stofufólks og Starfsafls. Markmiðið með verkefninu er að styðja við og valdefla stjórnendur ferðaþjónustufyrirtækja til að sjá sjálfir um fræðslugreiningu innan fyrirtækis og koma á markvissri fræðslu og þjálfun fyrir starfsfólk. Um leið fá stjórnendur þjálfun í notkun á verkfærum og stuðningsefni Hæfnisetursins og hvernig má nýta þau við greiningar og þjálfun starfsfólks. Verkefnið þjónar einnig þeim tilgangi að kynna fyrirtækjunum styrkjaleiðir sjóðanna (attin.is) vegna fræðslu og hæfnieflingar starfsfólks.
Verkefnastjórar Hæfnisetursins höfðu samband við og heimsóttu um 70 fyrirtæki og kynntu fyrir þeim verkefnið. Alls tóku þátt um 14 þeirra þátt og fengu styrk í gegnum sjóðina (attin.is).
Hæfnisetrið vonast til að áframhald verði á verkefninu til framtíðar. Fræðsla til framtíðar er snarpt og hnitmiðað verkefni sem hentar stjórnendum innan ferðaþjónustunnar einstaklega vel og ávinningurinn skilar sér fljótt.

“Allt í allt var þetta samstarf mjög gagnlegt, þar sem verkefnastjóri hafði góða yfirsýn yfir ferla og veitti bæði skapandi og faglega innsýn sem hjálpaði okkur að bæta þjálfun og fræðslu fyrir nýja starfsmenn. Með hans hjálp er ég betur í stakk búin til að byggja upp öfluga nýliðaþjálfun og viðhalda góðri fræðslu til starfsmanna okkar.“
Bergrós Guðbjartsdóttir,
hótelstjóri Hótel Akureyri
NÁMSLÍNA Í FERÐAÞJÓNUSTU
Námslínan í ferðaþjónustu var skrifuð af Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og Hæfnisetri ferðaþjónustunnar í samstarfi við nokkra framhaldsskóla og símenntunarmiðstöðvar. Í lok árs var opnað fyrir raunfærnimat til styttingar á námi á móti námslínunni.
Námskrárnar eru þrjár og samanstanda af 40 eininga kjarna og 50 eininga sérsviðum:
- Móttaka
- Veitingar
- Böð, lindir, lón
Framkvæmdaaðilar verkefnisins eru SÍMEY (Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar) og Fræðslunetið – símenntun á Suðurlandi og er það unnið í samstarfi við Hæfnisetrið. Niðurstöður um fjölda þátttakenda sem fóru í raunfærnimat og námið í framhaldinu munu liggja fyrir á þessu ári.
Markmið námslínu í ferðaþjónustu er að auka þekkingu, færni og fagkunnáttu fólks sem hefur áhuga á að vinna í ferða- þjónustu eða er þegar við störf innan geirans. Tilgangur námsins er jafnframt að efla sjálfstæði við algeng störf sem tengjast þjónustu við fjölbreyttan hóp ferðafólks og jafnframt að námið sé góður undirbúningur fyrir störf og áframhaldandi nám innan ferðaþjónustunnar.

6 SKREF Í ÁTT AÐ GÓÐRI ÖRYGGISMENNINGU
Áherslan á öryggismál innan ferðaþjónustunnar hefur farið stigvaxandi samhliða auknum fjölda ferðamanna og fjölbreyttari áfangastöðum. Hæfnisetrið vann á árinu stuðningsefni í samvinnu við Ferðamálstofu um 6 skref sem ferðaþjónustufyrirtæki geta stigið í átt að góðri öryggismenningu.
Stjórnendur geta stuðst við skrefin til að sýna gott fordæmi fyrir starfsfólk og hvetja starfsfólk til að sýna örugga vinnuhegðun. Áhersla er lögð á fyrirbyggjandi aðgerðir í stað viðbragða og með því hvatt til ábyrgðartilfinningar hjá starfsfólki gagnvart öryggismálum.
Stór þáttur í að byggja upp sterka öryggismenningu er að hafa skýra þjálfunaráætlun fyrir nýtt og núverandi starfsfólk. Inni á hæfni.is má nálgast yfirlit yfir fjölbreytta öryggisþjálfun sem boðið er upp á. Áframhaldandi vinna varðandi öryggismál er í gangi í samvinnu við Ferðamálastofu.
MÁLSTEFNA
Eitt af hlutverkum Hæfnisetursins samkvæmt samningi við atvinnuvegaráðuneytið er að vinna að auknum sýnileika og notkun starfsfólks í ferðaþjónustu á íslensku í samvinnu við stjórnendur fyrirtækja og aðra hagsmunaaðila.
Lögð hefur verið áhersla á að finna leiðir til að styðja fyrirtæki í ferðaþjónustu í að auka notkun og sýnileika íslensku á vinnustaðnum. Unnið var sniðmát að málstefnu sem er aðlöguð að ferðaþjónustunni. Málstefna felur í sér leiðbeiningar um málnotkun í alþjóðlegu umhverfi og skerpir á því hvaða tungumál eigi að tala á vinnustaðnum, við hvaða tækifæri og hvers vegna.
Með því að tryggja að upplýsingagjöf sé ávallt öllum skiljanleg og með hvatningu og stuðningi við erlent starfsfólk til að læra íslensku stuðlar málstefna að inngildingu, bæði á vinnustaðnum og í nærsamfélaginu. Með því að innleiða málstefnu á vinnustöðum er verið að leggja áherslu á að íslenskan verði lifandi hluti af daglegum samskiptum allra, um leið og stefnan styður starfsfólk, fyrirtæki og sveitarfélög í að viðhalda menningararfinum.
Námskrárnar eru þrjár og samanstanda af 40 eininga kjarna og 50 eininga sérsviðum:
- Móttaka
- Veitingar
- Böð, lindir, lón
SAMSTARFSVERKEFNI
ARNHEIÐUR JÓHANNSDÓTTIR framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands/Visit North Iceland
SAMSTARF HÆFNISETURSINS
OG MARKAÐSSTOFA LANDSHLUTANNA

Við upphaf reksturs áfangastaðastofa hringinn í kringum landið árið 2018, var unnin mikil greiningarvinna á helstu hlutverkum þeirra. Eitt af þeim verkefnum sem skilgreind voru er samstarf við Hæfnisetur ferðaþjónustunnar með það að markmiði að efla hæfni og gæði í greininni. Þar sem skilgreiningin á áfangastaðastofum sem reknar eru af Markaðsstofum landshlutanna, var nýtt skref í þróun á stoðkerfi ferðaþjónustunnar, tók við vinna við þarfagreiningu svo finna mætti bestu leiðir til öflugs samstarfs. Ýmsar leiðir hafa verið reyndar og er nú kominn mjög góður skriður á samstarfið sem skilar þekkingu inn á alla landshluta, hvatningu til góðra verka og stuðningi.
Menntamorgnar ferðaþjónustunnar sem sendir eru út á vefnum reglulega hafa vakið mikla lukku og hvatt ferðaþjónustuaðila til að bæta aðferðafræði sína í ýmsum þáttum starfseminnar ss. starfsmannamálum, stafrænni hæfni og markaðsmálum. Fundaröð hefur einnig verið sett upp í annað sinn þar sem boðið er til fræðslufunda og samtals í öllum landshlutum og hafa þeir verið vel sóttir. Lykillinn að árangri þar er samstarf Markaðsstofa landshlutanna og Hæfniseturs sem hafa sérsniðið fræðsluna að þörfum hvers landshluta.
Aukin hæfni og gæði hafa verið einn mikilvægasti þáttur í stefnumörkun ferðaþjónustunnar í fjölmörg ár. Samstarf í stoðkerfinu eins og nú er komið vel af stað skiptir miklu máli til þess að árangur náist. Unnið er með styrkleika beggja aðila og þannig næst að setja upp kraftmikið starf sem byggir á þekkingu og öflugu tengslaneti.

SAMSTARFS- SAMNINGUR VIÐ ÍSLENSKA FERÐAKLASANN
Í nóvember skrifuðu Haukur Harðarson verk- efnastjóri Hæfnisetursins og Ásta Kristín Sigurjónsdóttir hjá Íslenska ferðaklasanum undir samstarfsyfirlýsingu. Samstarfið miðar að því að vinna sameiginlega að markmiðum um að efla hæfni og fagmennsku innan ferðaþjónustunnar með sérstakri áherslu á sjálfbærni og nærandi ferðaþjónustu. Þessi öflugi liðsstyrkur mun án efa reynast Hæfnisetrinu vel í þeim fjölbreyttu verkefnum sem framundan eru.

MENNTAMORGNAR OG MENNTASPJALL
Menntamorgnar ferðaþjónustunnar eru haldnir reglulega til að koma á framfæri því sem er efst á baugi varðandi hæfni og gæði greinarinnar á Íslandi. Á árinu fengu Hæfnisetrið og Samtök ferðaþjónustunnar sem haldið hafa utan um verkefnið góðan liðsstyrk þegar Markaðsstofur landshlutanna bættust í hópinn. Samstarfið styrkir óneitanlega sýnileika og áhrif Menntamorgnanna en markaðsstofurnar hafa góða innsýn í þarfir fyrirtækja í hverjum landshluta og þannig nær nú fræðslan til breiðari hóps. Á árinu voru haldnir fjórir Menntamorgnar um ólík málefni þar sem sérfræðingar og fyrirtæki í ferðaþjónustu deildu reynslu sinni og ráðum auk þess sem verkfærum og stuðningsefni Hæfnisetursins var komið á framfæri. Í kjölfarið voru svo gerðir nokkrir stuttir viðtals- þættir þar sem ítarlegar var farið í einstök mál. Fundirnir fóru fram í beinu streymi gegnum Fésbókarsíðu Hæfnisetursins.


