FRAMTÍÐARSÝN

Stýrihópur Hæfnisetursins og starfsfólk áttu afkastamikinn vinnufund á haustmánuðum þar sem áherslur voru lagðar fram varðandi komandi starfsár og framtíðarsýn. Lögð var áhersla á að Hæfnisetrið verði miðja fyrir greinina hvað varðar hæfni og gæði.

group

ÁHERSLUATRIÐI STARFSÁRSINS 2025

  1. 1. SAMSTARF OG SAMTAL

    • Áframhaldandi gott samstarf við Markaðsstofur landshlutanna, Samtök ferðaþjónustunnar, Ferðamálastofu og Íslenska ferðaklasann.
    • Fundaröð um landið á vorönn og Menntamorgnar haldnir í samvinnu við Markaðsstofurnar og Samtök ferðaþjónustunnar.
    • Halda áfram að auka sýnileika gagnvart ferðaþjónustufyrirtækjum með markaðsherferðum, vinnustofum, heimsóknum og efnissköpun á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum.
  2. 2. STUÐNINGUR VIÐ FERÐAÞJÓNUSTUNA

    • Unnið í takt við aðgerðaáætlun stjórnvalda til ársins 2030 og núgildandi samning við atvinnuvegaráðuneytið, með áherslu á sjálfbærni, öryggismál og stafræna þróun.
    • Áframhaldandi ráðgjöf við stjórnendur minni og meðalstórra ferðaþjónustufyrirtækja í takt við auknar kröfur um tæknibúnað, harðnandi samkeppnisskilyrði og fjölmenningarlegar áskoranir.
    • Verkefnið Fræðsla til framtíðar er ein af leiðunum til aukins árangurs fyrirtækja á þessum sviðum.
  3. 3. PRÓFUN NÁMS

    • Niðurstöður um þróun náms í afþreyingarleiðsögn verða lagðar fram.
  4. 4. STAFRÆN ÞRÓUN

    • Áframhaldandi þróun, söfnun gagna og vinnsla stuðningsefnis gegnum Ferðaþúlsinn, stafrænna stuðningstóla fyrir ferðaþjónustufyrirtæki.
    • Nýtt og betra notendaviðmót á hæfni.is með spjallmenni sem byggt er upp á gervigreind.
    • Áframhaldandi þróun og kynning á stafrænnu vinnusvæði hæfni.is.