Er íslensk ferðaþjónusta á öruggri leið?

Menntamorgunn ferðaþjónustunnar 9.apríl

Íslensk ferðaþjónusta hefur vaxið hratt á undanförnum árum en þeim vexti fylgir mikil ábyrgð. Eitt mikilvægasta vörumerki Íslands er öryggi; sú tilfinning gesta okkar að þeir séu í góðum höndum, hvort sem þeir ganga á jökla, keyra um hálendið eða njóta menningar í bæjum landsins. En erum við raunverulega á öruggri leið? Og hvernig getum við, sem heild, tryggt að ímynd Íslands sem öruggur áfangastaður standist tímans tönn?


Menntamorgunn ferðaþjónustunnar bregður sér norður yfir heiðar til Akureyrar og býður ykkur til stefnumóts um öryggismál í íslenskri ferðaþjónustu fimmtudaginn 9. apríl kl. 11:00–13:00, á Hótel Kea. Viðburðurinn verður bæði staðfundur og í beinu streymi.
Við hvetjum ferðaþjónustuaðila á Norðurlandi til að mæta á staðinn, eiga samtal við samstarfsfólk í greininni og taka þátt í umræðunum yfir léttum veitingum. Fyrir þau sem eiga ekki heimangengt verður viðburðinum einnig miðlað í beinu streymi, svo sem flestir eigi þess kost að fylgjast með og sækja sér hagnýta þekkingu.


Dagskráin er sem hér segir:

11:00–12:00 – Erindi

•    Dagbjartur Brynjarsson, sérfræðingur í öryggismálum hjá Ferðamálastofu – „Frá atviki til umbóta: Kynning á miðlægu skráningarkerfi"
•    Gauti Þór Grétarsson, öryggisstjóri hjá Samherja – „Langflest slys eiga sér aðdraganda
•    Inga Björk Svavarsdóttir, sölustjóri vetrarferða hjá Saga Travel – „Þegar plan A bregst Skipulag, viðbrögð og ákvarðanir fyrir örugga ferð“
•    Guðmundur Örn Magnússon, skíðagæslufulltrúi Hlíðarfjalli – titill kynntur síðar
•    Sólveig Nikulásdóttir, sérfræðingur hjá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar – „Viðhorfskönnun um öryggismál ferðaþjónustunnar
Fundarstjóri er Viggó Jónsson, framkvæmdarstjóri Drangeyjarferða og stjórnarformaður Markaðsstofu Norðurlands

12:00–13:00 – Létt hádegishressing & pallborðsumræður

Pallborðsgestir:
•    Ólöf Ýrr Atladóttir, eigandi Sóti Summits
•    Hermann Karlsson, aðalvarðstjóri hjá Lögreglustjóranum á Norðurlandi eystra
•    Stefán Frímann Jökulsson, yfirlandvörður á austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs
•    Dagbjartur Brynjarsson, sérfræðingur hjá Ferðamálastofu
Stjórnandi pallborðs er Ágúst Elvar Bjarnason, verkefnastjóri hjá SAF


Skráning hér: 👇
https://haefni.is/menntamorgunn-oruggri-leid

Hæ! Hvernig get ég aðstoðað þig? 👋

Hvað er það sem þú vilt vita?