miðvikudagur, desember 3, 2025

Ferðalag án hindrana

Hæfni
header image

Í dag 3.desember fögnum við alþjóðlegum degi fatlaðs fólks. Því beinum við athyglinni að baráttu fatlaðs fólks fyrir réttindum til þátttöku, sýnileika og aðgengis í samfélaginu til jafns við aðra.

Í tilefni dagsins bjóða Ferðamálastofa og Hæfnisetur ferðaþjónustunnar ásamt Samtökum ferðaþjónustunnar uppá þáttinn í Stuttu máli – Ferðalag án hindrana. Þar kynnumst við verkefninu „Gott aðgengi fyrir alla” og horfum svo á spjall við Þuríði Hörpu Sigurðardóttur formann Sjálfsbjargar og Ásrúnu Ísleifsdóttur gæða-öryggis og umhverfisstjóra hjá Sky Lagoon um aðgengi í íslenskri ferðaþjónustu og tækifæri sem felast í framþróun þar.

Gott aðgengi er ekki aðeins sjálfsögð mannréttindi heldur líka viðskiptatækifæri og fjárfesting til framtíðar fyrir öll ferðaþjónustufyrirtæki.