
Hvað er málstefna?
Málstefna er sameiginleg stefna fyrirtækis um hvernig tungumál eru notuð í daglegu starfi, bæði í samskiptum við gesti og í samstarfi starfsfólks. Hún felur í sér skýr viðmið um hvaða tungumál eru notuð í mismunandi aðstæðum og hvernig tryggja má að upplýsingar séu öllum skiljanlegar.
Í ferðaþjónustu starfar oft fjölbreyttur hópur fólks með ólíkan tungumálabakgrunn. Málstefna getur því hjálpað fyrirtækjum að skapa sameiginlegan ramma fyrir samskipti, styðja við notkun íslensku í starfi og stuðla að skýrari upplýsingagjöf.
Hvers vegna að innleiða málstefnu?
Markmiðið er ekki að setja flóknar reglur heldur að skapa einföld og skýr viðmið sem styðja við gott samstarf, fagmennsku og gæði í þjónustu.
- Skýr málstefna auðveldar þjálfun nýrra starfsmanna og stuðlar að stöðugri þróun og menntun innan fyrirtækisins.
- Málstefna getur hjálpað til við að vernda fyrirtækið gegn lögfræðilegum álitamálum sem tengjast samskiptum og upplýsingagjöf.
- Málstefna er góð leið til að stuðla að inngildingu og til að efla samskipti og samheldni starfsfólks af fjölbreyttum uppruna.
- Með því að innleiða málstefnu á vinnustöðum tryggjum við að íslenska verði lifandi hluti af daglegum samskiptum allra um leið og stefnan styður starfsfólk, sveitarfélög og fyrirtæki í að viðhalda menningararfinum.
Sniðmát fyrir málstefnu á stafrænu vinnusvæði
Það þarf ekki að finna upp hjólið! Á stafrænu vinnusvæði er sniðmát að málstefnu sem stjórnendur geta aðlagað að sínu fyrirtæki. Skjölin sem þú breytir og vistar eru alltaf aðgengileg til uppfærslu síðar og þú getur boðið öðrum aðgang, hvort sem það er til samvinnu eða þegar nýr starfsmaður tekur við. Að lokum er einfalt að hlaða niður tilbúnu skjali í PDF eða vista slóð að því sem vefpart á heimasíðu eða innri vef fyrirtækisins. Þannig verður málstefnan ekki bara orð á blaði - hún verður lifandi hluti af starfseminni.


