GÓÐ BYRJUN SKIPTIR MÁLI!
Vel skipulögð móttaka og markviss þjálfun nýrra liðsfélaga setur tóninn: þjónustan verður betri, starfsmannavelta minnkar og starfsánægja eykst. Með aðgengilegu stuðningsefni, gátlistum og góðri starfsmannahandbók getur þú tryggt að nýliðar fái markvissa og ítarlega þjálfun – strax frá fyrsta degi.


Ráðningarferli erlends starfsfólk
Erlendir ríkisborgarar sem koma til starfa innan ferðaþjónustunnar þurfa að sækja um ýmis leyfi og réttindi. Mikilvægt er að hefja umsóknir tímanlega því ferlið getur tekið allt að sex mánuðum

Móttaka nýliða
Skýrt móttökuferli styttir aðlögunartíma starfsfólks, skapar jákvæð tengsl við vinnustaðinn frá byrjun og stuðlar að starfsánægju.

Nýliðaþjálfun
Starfsfólk sem fær markvissa þjálfun þegar það hefur störf er líklegra til að aðlagast vel í starfi og mæta þörfum gesta með framúrskarandi þjónustu.