Markviss þjálfun=Framúrskarandi þjónusta

Nýliðaþjálfun

header image

Góð nýliðaþjálfun skapar grunninn að öruggri, faglegri og framúrskarandi þjónustu. Þegar starfsfólk fær markvissa þjálfun strax frá upphafi eru þau fljótari að aðlagast, ná góðum tökum á starfinu og mæta þörfum gesta af öryggi og gestrisni.

Hér fyrir neðan finnur þú fræðslu-og stuðningsefni sem styður við áhrifaríka þjálfun á vinnustað og styrkir þjónustuferlið frá fyrsta degi.

Þrif
Hreint og snyrtilegt umhverfi fyrirtækja stuðlar að jákvæðri upplifun gesta og getur leitt til betri umsagna og aukinnar tryggðar
Veitingar
Fagleg framkoma og þjónusta skiptir miklu máli fyrir upplifun gesta og orðspor veitingastaða.
Samskipti og gestrisni
Framlínustarfsfólk er andlit fyrirtækisins og gegnir mikilvægu hlutverki í að skapa jákvæða upplifun
Öryggi
Brýnt er að allt starfsfólk búi yfir þekkingu á helstu öryggisatriðum og öryggisáætlunum.
Starfsþjálfun með raundæmum
Raundæmin eru ætluð til þjálfunar og fræðslu á vinnustað. Raundæmin eru frá Gerum betur, hönnuð af Sigrúnu Jóhannesdóttur og Margréti Reynisdóttur, og evrópska þróunarverkefninu Enterprised.
Upplýsingavefurinn GoodtoKnow.is
GoodtoKnow.is er upplýsinga-og fræðsluvefur fyrir framlínustarfsfólk í ferðaþjónustu og nýtist sérstaklega þeim sem ekki hafa áður starfað í íslenskri ferðaþjónustu.