Hér getur þú fundið fjölbreytt úrval verkfæra fyrir stjórnendur og starfsfólk til að efla hæfni og gæði.

Þekktu þín stafrænu stöðu
Ferðapúlsinn er verkfæri fyrir ferðaþjónustuaðila þar sem þeir geta með einföldum hætti fengið mat á stöðu fyrirtækisins hvað varðar stafræna hæfni. Hæfnisetur ferðaþjónustunnar þróaði Ferðapúlsinn í samvinnu við Ferðamálastofu, Íslenska ferðaklasann, Markaðsstofur landshlutanna og SAF.
Hæfni

Afhverju að innleiða sjálfbærnistefnu?
Sjálfbærnistefna er ekki bara fallegt orð – hún er lykillinn að því að vernda íslenska náttúru og tryggja að hún haldist einstök fyrir komandi kynslóðir. Ferðamenn í dag eru sífellt meðvitaðri um umhverfisáhrif ferða sinna og margir gera kröfur um skýrar stefnur og vottanir. Fyrirtæki sem taka sjálfbærni alvarlega verða því ekki aðeins hluti af lausninni, heldur líka eftirsóttur kostur fyrir gesti.
Hæfni

Byrjaðu strax – með tilbúnu sniðmáti
Starfsmannahandbók er lykillinn að fagmennsku, skýrleika og góðri starfsmenningu. Hún tryggir að allir starfsmenn viti hverjar reglurnar eru, hvaða gildi fyrirtækið stendur fyrir og hvernig við vinnum saman til að skapa frábæra upplifun fyrir gesti og starfsfólk.
Hæfni

Einfaldar daglegt starf í ferðaþjónustu
Við bjóðum öllum aðilum innan ferðaþjónustunnar að nýta sér þetta frábæra svæði algerlega frítt. Hér getur þú fengið aðgang að gagnvirku svæði sem inniheldur fjölda sniðmáta sem þú getur auðveldlega aðlagað að þínum rekstri. Hvort sem þú vilt birta efnið á vefnum þínum eða öðrum vettvangi, þá er þetta rétti staðurinn fyrir þig!
Hæfni

Hjálpa starfsfólki og gestum að skilja hvort annað
Um er að ræða orðasafn algengra orða og frasa sem notaðir eru í ferðaþjónustunni og geta auðveldað samskipti á vinnustað. Fagorðalistar ferðaþjónustunnar auðvelda samskipti, stuðla að betri þjónustu og hjálpa starfsfólki og gestum að skilja hvort annað.
Hæfni

Þekking fyrir framlínu ferðaþjónustunnar
GoodToKnow.is er upplýsinga- og fræðsluvefur fyrir framlínustarfsfólk í ferðaþjónustu sem auðveldar framlínustarfsfólki að veita ferðamönnum góðar og réttar upplýsingar. Hann nýtist sérstaklega þeim, sem hafa ekki áður starfað í ferðaþjónustu. Unnið í samstarfi við Ferðamálastofu og styrkt af Landsmennt, Starfsafli og Starfsmenntasjóði verslunar- og skrifstofufólks.
Hæfni