header image

Hvað er öryggismenning og af hverju skiptir hún máli?

Öryggismenning vísar til þeirra viðhorfa, hegðunar og gilda sem móta hvernig öryggismál eru metin, rædd og framkvæmd innan fyrirtækis. Hún endurspeglar hversu vel öryggi er samþætt daglegu starfi – bæði í ákvörðunum stjórnenda og í viðhorfi starfsfólks.Í ferðaþjónustu snýr öryggi að velferð bæði gesta og starfsfólks – og þar gegna stjórnendur lykilhlutverki. Með því að vera fyrirmynd í öryggismálum, skapa rými fyrir samræður og tryggja reglulega endurskoðun öryggisferla, byggist upp traust og virkt samstarf innan fyrirtækisins. Í kjölfarið verður starfsfólk líklegra til að taka virkan þátt í öryggisvinnu og stuðla að jákvæðri öryggismenningu.Hér eru 6 hagnýt ráð sem styðja stjórnendur í því að efla öryggi sem órjúfanlegan hluta af daglegri starfsemi